Hér fara á eftir punktar úr myndbandinu ,,Strange & Weird Niacin (B3) Deficiency Signs and Symptoms“ eftir dr. Eric Berg. https://www.facebook.com/watch/?v=2314044418968462&rdid=UVdXsKrNCnj5BUFd Myndbandið byrjar á því að dr. Eric Berg segir að nokkur frekar undarleg og mjög einstök einkenni séu tengd ,,Niacin“ eða B-3 vítamín eins og það er nefnt á íslensku.
Dr. Berg segir undirklínísk einkenni mikils skort á B-3 vítamíni geti komið á óvart. Eitt af því sé að missa bragðskyn, eða að það komi skrítið bragði í munninn. Að taka inn B-3 vítamín í eina viku gæti leyst þann vanda, gæti þurft lengur ef skortur er mikill. Næsta vandamál er tap á lyktarskyni, sem venjulega er kennt vð sinkskort, en getur líka verið vegna B-3 vitamínsskorts. Þau einkenni gætu líka verið; breyting á lykt, að hlutir lyktuðu ekki eins og þeir ættu að gera. Fleiri einkenni gætu verið t.d. þegar þú lítir í spegil fyndist þér að eyrun og andlitið hreyfist aðeins, eða að það breyti um lögun. Eins gæti þér fundist þegar þú horfir á bók að orðin hreyfist aðeins og þegar þú gengur á jörðinni gæti þér fundist jörðin vera óstöðug, eða hreyfst örlítið. Þú getur líka fundið fyrir þreytu, eða bara haft tilfinningu um að geta ekki slakað á. Þetta er allt undirklínískur B-3 vítamínskortur sem nú er kallaður ,,Pellagra“.
Til að leiðrétta mikinn B-3 vítamínskort dugar ekki að fara eftir ráðlögðum dagskömmtum (RDAS), sem er um 20 milligrömm á dag. Það þarf mikið meira magn. Dr. Berg talar um að það gæti þurft 6 belgi á dag. En hann segir ekki styrkleikann í milligrömmum. Um er að ræða tvær gerðir B-3 vítamíni það er: níasín og níasínamíð.
Vandinn við inntöku níasín er að því fylgir mikill hiti í húð sem reyndar fer fljótt. Ef byrjað er með mjög smáan skammt og svo smám saman aukið, þá aðlagast kannski líkaminn því. Dr. Berg segist sjálfur ekkert hafa á móti að nota það. En fólk haldi stundum að það sé með ofnæmi fyrir því út af þessu. Aftur á móti eru engin vandamál við inntöku níasínamíð.
Ein stór ástæða er fyrir því að við þurfum níasín eða hvatbera, það kallast NAD og hjálpar við að vinna rafeindir úr matvælum, sem er orkugjafinn. B-3 vítamín er undanfari þess og með nægilegu magni af níasíni framleiðir likaminn meiri orku úr matnum sem neytt er. Það getur stutt serótónín, sem tekur þátt í að auka langlífi og DNA viðgerðir. Flestir sjúkdómar eiga í raun upptök sín í hvatberum. Í öllum hrörnunarsjúkdómum má sjá mikinn skort á þessu NAD og sérstaklega í sjúkdómum sem tengjast öldrun. Því að með aldrinum minnkar magn NAD.
B-3 vítamín í formi níasínamíðs er mjög gagnlegt fyrir húðina, unglingabólur og sóríasis. Einnig gegn bólgusjúkdómum eins og iktsýki og hvaða liðagigt sem er. Níasín hjálpar mjög við fitusýrur, kólesteról LDL og HDL. Það var mjög vinsælt áður en statínlyfin komu. Níasín er tekið gegn fitusjúkdómi í lifur.
Matvæli sem eru rík af B-3 vítamíni eru dýraafurðir og innmatur, t.d. lifur. Rautt kjöt er efst á lista. Það er í næringargeri og dr. Berg bendir á að sneiða hjá næringarger sem bætt hefur verið í tilbúnum vítamínum, sem algengt sé að sett séu í næringarger. B-3 vítamín má líka fá úr Spirulinu.
Hvað getur valdið skorti á B-3 vítamíni ? Unninn matur, unnið korn, hveiti og morgunkorn, veldur skorti á B-3 vítamíni og því meira prótein og kolvetni sem neytt er því meiri verður þörfin fyrir B-3 vítamín. Vegna þess að það tekur þátt í að vinna orku úr matnum.
Ofur unninn matur, meðganga, alkóhólismi og Covid-19 eykur þörf á B-3 vítamíni. Það skýrir sennilega mörg einkenni eins og tap á lyktarskyni og bragðskyni. Á það getur sinkskortur einnig haft áhrif. Mörg lyf auka þörfina fyrir fyrir B-3 vítamín gríðarlega. Hægt er að nota niacinamid nema ef um er að ræða sérstakt kólesterólvandamál þá þarf að nota níasín.
Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi, stytti og endursagði punkta úr myndbandinu ,, Strange & Weird Niacin (B3) Deficiency
Signs and Symptoms“ eftir Dr. Eric Berg. https://www.facebook.com/watch/?v=2314044418968462&rdid=UVdXsKrNCnj5BUFd
Höfundur myndbandsins Eric Berg
Áður birtar greinar í Heilsuhringnum um B-3 vítamín hefur stundum verið inn í umfjöllum um önnur efni. Eins og í erftirfarandi sem tekið úr greininni: Blóðfita lækkuð með vítamínum. „Ég þekkti ekki NADase og spurði Ævar Jóhannesson hann sagði að þetta væru ensím sem líkaminn notar til að mynda kóensím NAD og NADH sem hann vinnur úr B-3 vítamíni (niacinamide). NAD og NADH eru lykilefni við orkuvinnslu frumanna við að mynda ATP adenosine þrífosfat, sem öll orkuvinnsla frumunnar byggir á“. https://heilsuhringurinn.is/2005/04/01/blodfita-kaekkud-med-vitaminum/
B-3 vítamín minnkar líkur á Alzheimerssjúkdómi
Eldra fólk sem neytir lítils af B-3 vítamíni er í meiri hættu á að fá Alzheimersjúkdóm en annað fólk, sem fær meira af þessu vítamíni. Þetta kom fram á ársfundi Öldrunarfélags Bandaríkjanna á þessu ári. Rannsóknarmenn frá Rush Institute for Healthy Aging í Chicago gerðu könnun á 815 heilbrigðum einstaklingum eldri en 65 ára, sem bjó í sama bæjarhverfi. Þátttakendur fylltu út spurningalista um hversu oft á dag matar var neytt og hvers konar, áður en könnunin hófst. Í ljós kom að B-3 vítamín hafði æskileg áhrif til að hindra að Alzheimerssjúkdómur komi fram hjá þessu fólki.
Fólk sem fékk mest af B-3 vítamíni í fæðunni sem var 22.4 mg á dag að meðaltali, var í 79 % minni hættu að fá Alzheimersjúkdóm, en það fólk sem minnst fékk af þessu vítamíni, sem var 12.6 mg á dag að meðaltali. Einnig dró það úr líkum á að fá Alzheimersjúkdóm að nota B-3 í bætiefnatöflum. Heimild: 2005 Annual Scientific meeting of the Gerontological Society of America. Höfundur: Ævar .Jóhannesson vor 2006. https://heilsuhringurinn.is/2006/04/15/ur-einu-i-annae-vor-2006/
B3 vítamín (niacinamide) gegn áfengisfíkn verkar
https://heilsuhringurinn.is/1987/04/01/b3-vitamin-nikotinamid-gegn-afengisfikn-verkar/
sept. 2025
Categories: Annað