Að skilja orsakir eirðarleysis í fótum

Dr. Eric Berg er þekktur fyrir að leita að frumorsök sjúkdóma og benda á lausnir. Í myndbandinu ,, Understanding Restless Legs Syndrome and Causes „ tekur hann fyrir ástæður fótaóeirðar. Hér er myndbandið stytt og endursagt. https://www.youtube.com/watch?v=QAoq14NlDQc

Dr. Eric Berg segir í byrjun myndbandsins að um tvítugt hafi hann sjálfur liðið fyrir fótaóeirð. Hann hafi vaknað um miðjar nætur, barið fæturna og gengið í hringi um íbúðina. Þá hafi hann ekki vitað að í raun sé mjög auðvelt að laga þetta. Aðalástæður fyrir þessu séu tvær.

Í fyrsta lagi geti það verið uppsöfnuð mjólkursýra sem svipti vöðvana súrefni. Því fylgi mikill skjálfti og rafmagnstilfinning í fótleggjum og öðrum vöðvum líka. Ef uppsöfnun mjólkursýru sé ástæðan þá vanti einfaldlega B-1 vítamín. Sé það ástæðan megi strax finna mun með því að taka inn B-1  vítamín. Best sé að fá B-1 vítamín úr mat því að megnið af B-1 vítamíni sem keypt sé í búð sé tilbúið ,,synthetic“ en það virki samt tekið inn skamman tíma.

Önnur frekar líkleg orsök sé ójafnvægi blóðsalta með kalíumskorti. Það þarf mikið af kalíum á hverjum degi eða 4700 milligrömm. Einn banani inniheldur 300 milligrömm af kalíum.

Þrjár ástæður fyrir skorti á kalíum

Ein ástæða gæti verið sú að ekki sé neytt nógu mikils grænmetis og vanti kalíum í fæðuna.

Önnur ástæða gæti verið sú að það vanti magasýru. Ef tekin eru magasýrustillandi lyf verður  sýrustig magans ekki nóg til að taka upp kalíum. Til dæmis er orsök bakflæðis skortur á sýru, við því er hægt að taka inn eplaedik, eða sýru, eða kalíumklóríð. Margir sem eiga við þessi vandamál að stríða vita ekki að kalíum frásogast ekki ef vantar sýru.

Þriðja ástæðan gæti verið blóðsykurs vandamál, til dæmis blóðsykurslækkun, insúlínviðnám, eða sykursýki. Hjá einstaklingi sem insúlínið virkar ekki og stjórnar ekki kalíum frásogi og nær ekki að taka upp kalíum úr frumunum, gæti það endað með fótaóeirð. Ef þú ert með blóðsykurs vandamál, þráir að borða, ert þreyttur eftir að þú hefur borðað, ert uppþemdur, eða ert ekki saddur, þráir hvaða kolvetni sem er, þá ættir þú að horfa á þetta myndband.

Dr. Berg bendir á að inntaka kalíum geti leiðrétt þennan vanda og að gott sé að auka grænmetisneyslu. En það sem hægt er að gera strax er að kaupa kalíum í heilsubúð eða að panta það hjá Amazon. Vandamálið er að aðeins er hægt að pantað 909 milligrömm en törfin er 4700 milligrömm á dag. Það krefst þess að taka margar töflur á hverjum degi, sem er ekki eftirsóknarvert. Hann leggur því til að kaupa kaíum í dufti og leysa það upp, taka inn 700 milligramma skammta 7 sinnum yfir daginn með nokkurra klukkutíma millibili í tvo daga.  Hann vonar að  þetta hjálpi og líðan verði betri og hvetur fólk til að skrifa athugasemdir inn á vefinn. Hann endar á að segja að við þessum vanda þurfi ekki að taka lyf.

Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi og endursagði punkta úr myndbandinu ,,Understanding Restless Legs Syndrome and Causes“ eftir dr. Eric Berg  slóðin er: https://www.youtube.com/watch?v=QAoq14NlDQc

Ágúst 2025

 



Categories: Greinar

Tags: , , , ,