Að sigrast á afleiðingum skjaldkirtilssjúkdóms

Hér segir Sigríður Rósa Kristjánsdóttir heilsumarkþjálfi og einkaþjálfari frá því þegar líf hennar tók óvænta stefnu árið 2009 er hún greindist með vanvirkan skjaldkirtil. Það sem fylgdi í kjölfarið var langt og krefjandi ferli sem stóð yfir í níu mánuði, þar sem finna þurfti réttan lyfjaskammt til að halda sjúkdómnum í skefjum.

Ég fann fyrir öllum einkennunum, stöðugri þreytu, kulda, hárlosi og miklum þurrki í húðinni. Einnig bættust fljótt á mig aukakíló, þó ég væri í stöðugri hreyfingu. Eitt sem hafði mest áhrif á mig var þegar ég missti nánast allt hár af annarri augabrúninni og ákvað því að fara í augabrúna tattoo til að endurheimta sjálfstraustið.

Þrátt fyrir öll þessi einkenni þá fattaði ég ekki strax að um alvarlegt ástand væri að ræða. Ég , fékk ekki hita og taldi þetta því vera tímabundið ástand, sérstaklega þar sem mikið var að gera hjá mér á þessum tíma í vinnu og einkalífi. Eftir ítarlega greiningu kom í ljós að skjaldkirtillinn var orðinn óvirkur og þarf ég síðan að vera á háum skammti af skjaldkirtilslyfinu Eutirox til að halda jafnvægi í líkamanum.

Ég hef í gegnum árin lagt mikla vinnu í að kynnast eigin líkama og finna út hvað hentar mér best og komist að því að sykur hefur verulega neikvæð áhrif á líkamlega líðan. Hef því dregið sykur nær alveg út úr mataræði mínu. Í dag drekk ég aðallega vatn, kaffi og stundum sykurlaust gos.

Til að ná aftur tökum á líkamanum og losna við aukakílóin breytti ég einnig hreyfivenjum mínum.  Eftir að ég aflaði mér kennararéttinda í Hatha jóga eru jóga og lyftingar orðnar mín aðal hreyfing. Það hefur verið frábært að sameina þetta tvennt og finna hvernig líkaminn styrkist og jafnvægið eykst..

Mataræðið hefur einnig tekið breytingum. Ég borðar yfirleitt fyrstu máltíð dagsins um klukkan 12 og legg áherslu á prótein í öllum máltíðum og finn mikinn mun þegar ég passa upp á það. Einnig tek ég omega fitusýrur og er núna að prófa mig áfram með fæðubótarefni. Þetta er eilífðar vinna, en líka skemmtileg. Það er svo gaman að finna muninn og sjá hvað virkar vel .

Í dag deili ég  reynslu minni opinskátt á Facebook-síðu með það að markmiði að styðja við aðra sem glíma við skjaldkirtilsvandamál. Með því vonast ég til að hjálpa öðrum að stytta leiðina að betri líðan og auknu jafnvægi í lífinu.

Saga mín er áminning um mikilvægi þess að hlusta á líkamann, leita svara og gefast ekki upp – jafnvel þegar leiðin er löng og krefjandi.    ,,Þú getur þetta líka”.

Höfundur: Sigríður R. Kristjánsdóttir heilsumarkþjálfi og einkaþjálfari

Sími: +345 899 0455,  Insta: @heilsumarkthjalfun, Facebook:/Heilsumarkþjálfun

www.siggakr.is

Insta: @sigga.kr

Facebook: /siggakr70



Categories: Reynslusögur

Tags: , , , ,