Hve mikið B-12 vítamín er of mikið?

Hér eru gripnir nokkrir punktar úr myndbandinu: How Much B12 is TOO MUCH? eftir dr. John Coppola, DC, ACN leiðandi sérfræðing í meðhöndlun á úttaugasjúkdómum. https://www.youtube.com/watch?v=7s76YDCAREY

Dr. John Coppola telur sennilegt að við höfum heyrt um frábæra kosti B-12 vítamíns. Að það gefi: meiri orku, einbeitingu, betra skap og auki súrefnisflæði til heila og líkama. Einnig að B-12  vítamín geti jafnvel gert við skemmdar taugar og hjálpað til við að viðhalda taugaheilbrigði.

Hversu mikið B12 er of mikið?

Í myndbandinu útskýrir hann hversu mikil B-12 vítamín þörf líkamans er og að flestir séu í hættu á að fá ekki nóg frekar en of mikið.

Taugaviðgerðarformúla

Dr. John Coppola segir að eitt af því fyrsta sem hann geri við úttaugaskaða er að setja sjúklingana á viðgerðar formúlu sem inniheldur mjög mikið magn af B-12 vítamíni. Sjúklingarnir hafa oft áhyggjur af því að það geti eitrað líkama þeirra. En til að átta sig á hversu mikið líkaminn þarfnast sérstaklega af B-12 vítamíni gegn úttaugakvilla bendir hann á eftirfarandi í tveimur liðum hve magn næringarefnisins er nauðsynlegt fyrir heilsuna.

RDA – Ráðlagður dagskammtur af B12 vítamíni

Flestir trúa því að ráðlagður dagskammtur heilbrigðisyfirvalda sé rétt magn næringarefna sem þarf til að halda heilbrigði. En í raun eru þessir ráðlögðu dagskammtar lágmark vítamína og steinefna sem þarf til halda okkur á lífi og koma í veg fyrir sjúkdóma eins og skyrbjúg og beinkröm. RDA mælir með aðeins 2.4 míkrógrömmum af B-12 vítamíni á dag, það er reyndar ótrúlega lítið magn.

Raunverulegt vandamál við þessi ráð RDA er að þau taka ekki tillit til lífsstíll til dæmis þeirra sem reykja, drekka áfengi reglulega eða búa í menguðu umhvefi. Þau taka ekki tillit til mikilla líkamsæfinga, í hversu miklu álagi fólk er, eða  hvernig ástand fólks er. Margt að af þessu eykur verulega þörf fyrir meira B-12 vítamín daglega.

ODA – Fyrir ákjósanlega dagskammta

ODA er hannað til að mæla nákvæmlega næringarþörf til að viðhalda heilsu ekki bara lágmarks þörf til að verjast sjúkdómum eins og RDA staðalinn. Skoðum þessar tvær mismunandi leiðbeiningar um inntöku B-12 vítamíns.RDA  mælir með 2,4 míkrógrömmum af B-12  vítamíni en ODA mælir með 10.000 míkrógrömmum daglega sem er 4000 sinnum meira en ráðgjöf RDA. Það er vegna þess að ODA ráðleggur ákjósanlega dagskammta til að halda heilbrigði, dafna og blómstra í stað þess rétt að lifa af með ráðum RDA.

Þrjár ástæður fyrir þörf á meira B-12 vítamíni

Ástæða nr: 1

Ef að RDA gildin duga ekki til að þú náir góðri heilsu og ef þú átt við úttaugasjúkdóm að etja þá eru ráð ODA viðeigandi leiðbeiningar fyrir þig.

 Ástæða nr: 2

B-12 vítamín er ákaflega öruggt, jafnvel tekið í stórum skömmtum vegna þess að það er vatnsleysanlegt vítamín. Það þýðir að ef þú neytir meira en líkaminn þarf á að halda skila nýrun því auðveldlega út úr líkamanum í gegnum þvagið. Í raun er B-12 vítamín svo öruggt að það er ekkert ákveðið hámark sem mun valda eitrun eða aukaverkunum.

Það hafa verið gerðar klínískar rannsóknir þar sem sjúklingar voru settir á stóra skammta af B-12 vítamíni. T.d. í  Japan var gerð rannsókn þar sem sjúklingum með MS sjúkdóm (multiple sclerosis) voru gefin 60.000 míkrógrömm af B-12 daglega í sex mánuði án aukaverkana. Dr. Coppola segist ekki vera að ráðleggja fólki að taka sextíu þúsund míkrógrömm af B-12 vítamíni daglega. Hann sé  bara að deila upplýsingum um klínískar rannsóknir sem sýna fram á hve mikið magn af B-12 getur verið öruggt þegar líkaminn er að gera við og þörf á næringarefnum er miklu meiri en venjulega.

Brennandi spurning: hversu mikið B-12 vítamín ætti að taka inn gegn taugakvilla, jafnvel þótt gildin líti eðlilega út í blóðrannsókn?

Ástæða nr: 3

Ef um taugasjúkdóm er að ræða þarf miklu meira af B-12 vítamíni. Sérstaklega þegar lækna þarf úttaugaskaða. Þá er ekki bara verið að viðhalda eðlilegu ástandi heldur verið  að gera við og lækna skemmdar taugar. Við slíkar aðstæður bókstaflega rýkur upp þörfin fyrir næringarefni. Aðstæður sem skapa mikla þörf á B-12 vítamíni eru til dæmis: Miklar líkamsæfingar, mikil streita, mikil þreyta, mikil áfengisdrykkja, reykingar, hjarta- og æðasjúkdómar.

Nauðsynlegt magn af B12 fyrir taugaviðgerðir

Klínískar rannsóknir hafa sýnt að til að styðja viðgerðir á skemmdum úttaugum og að aðstoða við endurnýjun tauga þarf að taka á milli fimmtán hundruð og þrjú þúsund míkrógrömm af B-12 á dag.

Dr. John Coppola segist vona að fólki líði betur með að taka inn B-12 vítamín með þá vitneskju að það sé alveg öruggt jafnvel í stórum skömmtum. Svo bendir hann þeim á sem vilja vita meira að skrá sig á síðuna þeirra og vinsamlega líka við.  Ekki gleyma að smella á bjölluna til að fá tilkynningu þegar birt er nýtt efni.

Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi og endursagði nokkra punkta úr myndbandinu: How Much B12 is TOO MUCH? eftir dr. John Coppola, DC, ACN leiðandi sérfræðing í meðhöndlun úttaugasjúkdóma. https://www.youtube.com/watch?v=7s76YDCAREY

25.apríl 2025.

                                                                                                                                                            



Categories: Næring

Tags: , ,