Veist þú hvaða aukefni eru í matarkörfunni þinni?

Í matvælum nútímans eru allskyns aukefni sem við flest kunnum lítil skil á. En hvaða efni eru þetta og hvaða áhrif skyldu þau hafa á líkama okkar? Eru einhver þeirra kannski ofnæmisvaldandi og geta sum aukefni e.t.v. valdið ofvirkni hjá börnum? Eða hafa einhver þeirra e.t.v. jákvæð áhrif á líkamann?

www.natturan.is hefur tekið saman ítarlegan lista yfir þau margvíslegu aukefni sem eru til staðar í matvælum. Um er að ræða efni eins og litarefni, þráavarnarefni og bindiefni. Sum efnin eru talin geta haft skaðleg áhrif á heilsu manna á meðan önnur aukefni eru beinlínis andoxandi og talin geta aukið hreysti og heilsu. Þriðji flokkur efna er síðan tiltölulega hlutlaus, þ.e. veldur hvorki neikvæðum né jákvæðum áhrifum. Skaðlegu efnin eru merkt rauðu megin á skalanum, hlutlaus efni á gula hluta skalans og efni sem talin eru hafa jákvæð áhrif á líkamann eru merkt grænu megin á skalanum. Heimilda er getið í hverju tilviki fyrir sig en varúðarstig er aðeins gefið upp til hliðsjónar og www.natturan.is tekur ekki afstöðu til þessar efna með neinum hætti.

E-efna tólið er aðgengilegt á forsíðu Náttúran.is og er notkun ókeypis.

Með því að slá inn heiti E-efnisins sem þú hefur áhuga á að fá upplýsingar um getur þú öðlast betri þekkingu á því sem er í matarkörfunni þinni. Þú getur beitt skynsemi þinni og þekkingu til að velja frekar þau aukefni sem hafa jákvæð áhrif og þannig haft áhrif á markaðinn. Ef við neytendur stöndum saman, þá getum við breytt ansi miklu í veröldinni.

Öll aukefnin hafa svokallað E-númer, en E stendur fyrir Evrópu. Nánari upplýsingar um aukefni er að finna á vef Matvælastofnunar,  www.mast.is en Matvælastofnun ber ábyrgð á eftirliti með aukefnum í matvælum hér á landi.

Grafík (Pdf viðhengi): Nýja E-efna tól Náttúran.is. 3 dæmi um hvernig mismunandi efni eru metin á litaskala sem jákvæð (græn), hlutlaus (gul), neikvæð(rauð) fyrir heilsu manna.

Náttúruteymið sem vann að E-efna tólinu voru; Einar Bergmundur Arnbjörnsson þróun og forritun, Ingibjörg Elsa Björnsdóttir umhverfisefnafræðingur og þýðandi, Guðrún A. Tryggvadóttir verkefnisstjórn og Jóhann Páll Jóhannsson nemi sem vann við þýðingar ásamt Ingibjörgu.

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
Guðrún A. Tryggvadóttir í síma 863 5490 eða gunna@nature.is.



Flokkar:Kynningar

Flokkar/Tögg, , , , ,

%d