G.E. var fæddur árið 1926 og alinn upp í sveit, sagði mér að þegar hann var 16 ára gamall hafi hann fengið djúpar sprungur og sár á hendurnar og fylgdi því mikill sársauki. Sprungurnar á gómunum náðu sumar inn í kviku. Gamall maður á bænum sagði honum þá að pissa í lófana og þvo hendurnar upp úr þvagi. Í fyrstu hraus unga manninum hugur við að framfylgja ráðinu og fannst þetta hinn argast sóðaskapur. Í þá daga var ekki auðhlaupið til læknis eða í apótek svo að þegar sársaukinn svarf enn meira að, átti hann ekki annan kost en að prufa þetta. Brá þá svo við að sárin fóru að gróa og fáum dögum seinna voru þau algróin.
Fyrir nokkrum árum varð GE fyrir því að löng viðarflís rakst upp með nögl á fingri hans. Með hörku náði hann flísinni út sem skildi eftir sig sár. Hann setti plástur á og taldi að þetta myndi gróa eins og venja er, en það hljóp illt í sárið og gróf í. Eins og í fyrra skiptið var hann staddur fjærri lækni og greip þá til þess ráðs að hreinsa sárið vandlega upp úr þvagi. Því fylgdi nokkur mikill sviði, en sárið gréri fljótt eftir meðferðina.
Þekkt meðferð í Þýskalandi. Starfandi heimilislæknir í Þýskalandi sagði mér að læknar þar þekktu þvaglækningar. Til að mynda ráðlegði hann mönnum sem leituð til hans með sprungur og sár í endaþarmi að nota þvag til að græða slíkt.
Höfundur; Ingibjörg Sigfúsdóttir
Sjá líka: Fuglaflensa og möguleg meðferðarúrræði: https://heilsuhringurinn.is/2006/09/05/fuglaflensa-og-moeguleg-meeferearurraeei/
Flokkar:Greinar og viðtöl