Afleiðingar myglu í húsnæði og ráð til bóta. Seinni grein.

Saga Gretu Óskar Óskarsdóttur bætiefnaráðgjafa

Ég var bætiefnaráðgjafi og var yfirleitt heilsuhraust, en dóttir mín hafði verið mikið veik frá því að hún fæddist. Hún var með mikið af fæðuóþolum, með bakflæði og exem. Hún var svo óvær, svaf illa og grét mikið. Heilsa okkar allra í fjölskyldunni hafði reyndar versnað dálítið á síðustu árum. Ég var með verki í rófubeini, verk milli herðablaða, fékk svimaköst og var orkulaus og þreytt. Fyrrverandi maður minn versnaði af ofnæmum sínum og hraut mikið. Sonur minn sem var á táningsaldri var að glíma við versnandi kvíða, jafnvel ofsakvíða.

Ég skildi ekki alveg hvað gæti verið að valda, því við lifðum nokkuð heilbrigðu lífi, borðuðum hreina og góða fæðu og þekking mín á jurtum vítamínum og bætiefnum hafði yrirleitt komið okkur til góða

Ég lagðist í rannsóknir og ég fann út að óþol fyrir mörgum fæðutegundum tengdist gjarnan umhverisáhrifum, sérstaklega rakaskemmdum og myglu í húsnæði. Ég sankaði að mér allri þekkingu sem ég fann, rannsóknum og upplýsingum af netinu og reynslu frá fólki sem hafði lent í þessu og frá fróðu fólki sem vann við þessi mál.

Við fengum sérfræðinga til að gefa okkur ráðgjöf, gera úttekt á húsnæðinu okkar og ráðleggja okkur um umgengni við hýbíli okkar. Við fengum svo helstu sérfræðinga landsins í að fjarlægja rakaskemmdir og myglu úr húsnæði til að skoða allt sem gæti verið grunsamlegt í íbúðinni okkar. Þeir inn í veggi, undir baðkar, skoðu þéttni glugga, ástand viðar og fleira. Þeir fundu loks sökudólginn inni í vegg og undir gólfefni í svefnherberginu okkar.

Heilsan varð mun betri. Við létum fjarlægja allt sýkt byggingarefni á sem öruggastan máta og notuðum tækifærið til að gera við fleira í íbúðinni. Heilsan batnaði til muna hjá okkur við hverja viðgerð sem þeir framkvæmdu.

Ég safnaði rannsóknum um veikindi vegna rakaskemmda og myglu í húsnæði. Ég lærði mikið um mygluveikindi og hvernig batna mætti af þeim. Ég tók höndum saman með fólki úr ólíkum stigum samfélagsins til að vinna að umbótum í þessum málefnum og til að miðla áfram upplýsingum til annara. Einn maður sem ég kynntist hafði leitað til 16 lækna áður en hann áttaði sig loks á því við hvað væri að eiga; veikindi vegna raka og myglu í húsnæði. Ekki eru allir að eiga við slík veikindi, en ég hugsa að þetta sé einn þáttur sem gott og gagnlegt sé að vera meðvituð um og þekkja. Ég tel mikils til að vinna að huga að þessum umhverfisþætti þegar kemur að heilsunni.

Höfundur:  Greta Ósk Óskarsdóttir bætiefnaráðgjafi.



Categories: Annað

Tags: , , , ,