Piparmynta og piparmyntuolía

Árið 2016 kom til mín Guðfinna Jónasdóttir hún hefur verið búsett lengi í Noregi og sagði frá athyglisverðri reynslu sinni af piparmyntuolíu sem er eftirfarandi: ,,Þetta byrjaði með því að ég vann með manni frá Bosníu nokkra daga. Svo hitti ég hann seinna í rútunni á leið heim þá var ég með sina- og festar bólgu í handleggnum og fann mikið til í olnboganum. Ég hélt hendinni að mér eins og ég væri með fatla, stakk hendinni niður í buxnastrenginn til þess að þurfa ekki að hreyfa olnbogann. Maðurinn tók eftir þessu og spurði hvað væri að. Hann sagði að besta ráðið væri að bera piparmyntuolíu á olnbogann og handlegginn. Það hittist svo vel á að heima átti ég piparmyntuolíu og bar hana strax á mig þegar heim kom. Þau undur gerðust að verkurinn hvarf strax.

Ástæða þess að ég átti piparmintuolíu var sú að nokkru áður hafði ég kvefast óskaplega mikið og var með algjörlega stíflað nefið. Ég þurfti að versla í kaupfélaginu og þegar ég kom á kassann sagði konan á kassanum: ,,Ertu alveg stífluð?  Komdu með mér bakvið“. Það tók hún glas með piparmyntuolíu og bar á hliðarnar á nefinu á mér alveg frá nasarótum. Ég var ekki komin út úr búðinni þegar stíflan fór og kvefið rann í stríðum straumum. Mér batnaði fljótlega. Það þarf bara örlítið af olíunni. Ef ég fæ höfuðverk ber ég piparmyntuolíu á ennið á mér og gagnaugun. Þá hverfur verkurinn undantekningalaust“.

Margar tegundir fást af piparmyntu ilmkjarnaolíum,  Höfundur:  Ingibjörg Sigfúsdóttir.

Hér er svo endurbirt grein um sögu piparmyntu úr haustblaði Heilsuhringsins árið 1981. Eftir: Marteinn Skaftfells, stofnanda Heilsuhringsins.

Piparmynta ,,mentha piperita”

Piparmyntu er ekki að finna í „Ferðaflóru“ Áskels Löve. Enda telst hún ekki til íslenskra jurta. En hér við hús undirrtaðs, og sjálfsagt víðar, hefur hún verið ræktuð í mörg ár, og þrifist vel. Við getum því boðið hana velkomna í flóru Íslands. Og fólk, sem hefur einhverja garðholu, ætti að rækta myntuna og afla sér hollrar tejurtar, á kostnað kaffisins, sem talið er auka kólesteról blóðsins, og flýtir fyrir kransæðastíflu, auk þess sem það rænir okkur B-l vítamíni.  En það stuðlar að nýtingu kolvetna í daglegri fæðu, og er jafnframt mikilvægt taugar vítamín.

Í erlendum fræðiritum um lækningargildi jurta, líklega flestum, er myntunnar getið. Hún var þekkt um árþúsundir fyrir okkar tímatal, austur í Kína, og síðar í Japan. Og lengi hefur hún verið kunn í Egyptalandi, því að fundist hefur hún í smyrðlingum (múmíum) konunga. Myntan hefur því verið mikils metin í æðstu stéttum. Í einni heimild um myntuna segir, að hún fylli arabíska markaði ilmi sínum, borin af smávöxnum ösnum.

Þannig voru og eru kannski enn matvörur markaðsins varðar flugum, þær fælast piparmyntuna. Frá höll og hreysi leggur myntuilm. Og að veita myntute, er í senn helg athöfn og hyggindi, því að piparmyntan er sýklaeyðandi og vinnur gegn farsóttum. Karl mikli (742-814) dreifði myntunni um Evrópu. Hann hafði ávallt með sér 6 tegundir myntu, og lét gróðursetja við bæi sína og borgir. Hann hefur því vel kunnað að meta ilm hennar, og sennilega þekkt heilnæmi hennar.

Piparmyntan mun vera ein þeirra jurta, sem notuð er í flestum löndum heims, og á ýmsa vegu, og henni eignaðir margir góðir eiginleikar, t.d. gegn gallsteinum, nýrna kvillum, höfuðverk, meltingarsleppu, holl lifur, hjarta, taugum, kirtlastarfsemi. Og fyrrum og kannski einhvers staðar enn, var myntunni blandað í ástardrykki. Hvenær piparmyntan barst hingað til lands, veit ég ekki. En öðru hvoru megin við 30 ár, hefur hún verið hér á markaðnum, meðal margra annarra hollra tejurta. Og svo mun sennilega verða áfram um aldir, því að bragð og ilmur hugnast flestum.

Hinn kunni þýski, dr. med og grasafræðingur R.F. Weiss segir myntuna vera eina af okkar bestu lækningajurtum, hafi góð áhrif á lifur og gall. En eins og allar lækningajurtir, eigi ekki að drekka hana,nema meðan þess er þörf, en ekki daglega yfir lengri tíma, þá dragi úr áhrifum hennar. Það er því rétt að „hvíla“ allar lækningajurtir öðru hvoru. En auðvitað megum við drekka þær, þótt við séum ekki haldin þeim kvillum, sem þær vinna gegn.

 



Categories: Greinar og viðtöl, Næring

Tags: , , , , , ,