Ylfa Carlsson gefur fleiri góð ráð um magnesíum. Pistill nr: 5
Magnesíum er svokallað steinefni og er nr. 4 á lista mínum yfir efni sem alls ekki má vanta í líkamann. En sem hver mesta vöntun er á, á vesturlöndum, vegna þess að við erum farin að borða eintóman óþverra, svokölluð unnin matvæli. Í bandaríkjunum er ástandið svo slæmt, að um 50% allra landsmanna líða mikinn skort á magnesíum. Gera má ráð fyrir að ástandið sé ekki miklu betra hér á landi. Magnesíum ásamt B-vítamínum, kalki og seleni heldur miðtaugakerfinu í lagi. Þetta þýðir það að alla sem skortir þetta efni eru slæmir á taugum. Verða margar konur illilega varar við það, einu sinni í mánuði með tilheyrandi verkjum vegna blæðinga. Koma má í veg fyrir slíkt með duglegum skömmtum af magnesíum.
Magnesíum er notað við um 300 virknir í likama okkar og hver einasta fruma þarf á því að halda sér til viðgangs.
1. Halda hjartanu heilbrigðu, því hjartað vinnur mest allra vöðva, þó sumir segi að tungan vinni meira, sérlega í konum.
2. Til að byggja upp beinin.
3. Halda líkamshita stöðugum.
Alls konar konar kvillar myndast við skort á magnesíum, nefni ég fyrst:
Minnistap, einbeitingarskort, þunglyndi, krampar af ýmsu tagi (blæðingaverkir eru krampar), hjartaflökt og skjálftar.
Við öllu þessu og á hverjum degi takið: 500 mg. af magnesíum, 1000 mg. af kalki og svo selenium 70 míkrógrömm, (ath. mikrógrömm, ekki milligrömm). Það er talið að mismunandi tegundir af magnesíum nýtist best við ýmsum kvillum, en eins og alltaf er mikilvægast að koma bara efninu í sig.
Eftirfarandi eru ráðleggingar um hvað er heppilegt við hverju: 1. Magnesíum L- Threonate frá Erasvital, (vegan 360 hylki, líka til í dufti ) hentar flestum vel (kostar um 1500 kr. á netinu.
2. M. Taurate fyrir hjarta og æðar.
3. M. Chelate fyrir vöðva.
4. M. Citrate fyrir efnaskipti ( offitu). t
5. M. Bisglycinate fyrir vöðvaslökun, krampa og svefn.
6. M. Malate við migreni og öðrum verkjum.
7. M. Sucrosomial fyrir orku og ónæmiskerfið.
8. M. Oratate fyrir íþróttafólk
9. Bio Optimizers betri svefn tekið áður en farið er að sofa.
Oft þegar bætiefni virka ekki hjá einstaklingum, er það af því að skammtar eru of litlir. Bætið þá við. Ef þið fáið niðurgang er rétt að minnka skammtana.
Gangi ykkur vel.
Ylfa Carlsson næringarfræðingur.
Categories: Næring