Segir Sigríður Ó. Ingvarsdóttir hjúkrunarfræðingur eftir að hún tileinkaði sér Ketó mataræði að ráði dr. Eric Berg. Við spurðum Sigríði fyrst hvort breyting hennar á mataræði hafi verið af því að hún hafi átt við heilsufars vandamál að stríða.
Nú nú gefum við Sigríði orðið:
Fyrir 10 árum árið 2013 lenti ég í slæmu slysi og brákaði á mér hálsinn. Ég gat varla haldið höfðinu uppi hvað þá heldur að halda höndunum fram við að elda. Þannig að ég borðaði bara í alla mata brauð og álegg. Þá auðvitað stækkaði ég og stækkaði og varð örvæntingafull hvort ég kæmist á fætur. Ég gat ekki labbað nema 20 mínútur og varð svo döpur yfir að þurfa að hætta að vinna. Það var mjög erfitt. En svo fór ég að hjarna við og ná mér aðeins með hjálp sjúkraþjálfara og gat farið í sund. Þá kom Covid og allt lokaðist. Engin þjálfun og allt sótti hjá mér í gamla farið.
Í Covid einangruninni fór ég að vafra á netinu og fann áhugavert myndband frá dr. Eric Berg. Ég sá þennan mann með stóra hvíta þéttskrifaða töflu fyrir framan sig. Hann var að útskýra insúlín viðnám og tók öll erfiðu orðin stig af stigi og útskýrði allt. Það sló mig svo þegar hann var að útskýra hvernig insúlín kerfið virkar og sagði: ,,Ef það er allt of mikið af glúkósa í of langan tíma segja frumurnar nei takk og heilinn líka. Brisið segir; ég hætti að framleiða insúlín og þegar allt kerfið er búið að gefast upp spyr lifrin; hvað á ég að gera við þennan sykur?” Dr. Berg segir ketó mataræði ekki hreyfa mikið við blóðsykrinum og hvatti fólk til að skipta yfir í það.
Á þessum tíma var ég orðin móttækileg fyrir breytingar og gerðist áskrifandi að myndböndum dr. Berg. Síðan hef ég drukkið í mig fræðslu hans. Hann er ótrúlega fróður og góður kennari og setur allt svo skemmtilega upp. Þó að fólk sé ekki lært á heilbrigðissviði eins og ég, er ekki annað hægt en að skilja útskýringar hans.
Það tók mig tíma að breyta og ég fór mjög rólega inn í þetta. Það tekur tíma fyrir líkamann að breyta glúkósabrenslu yfir í fitubrenslu. Sumir fá flensueinkenni á meðan. Ég fann fljótlega að bjúgurinn fór að renna af mér og þá styrktist ég í að halda áfram. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því áður að kolvetni binda vökva í líkamanum og auka bjúgsöfnun.
Ég byrjaði að lesa vandlega innihaldslýsingar og sneiða hjá því miður góða. Í rólegheitum skipti ég út vörum í eldhúsinu. Tók út allt margarín og blandaðar olíur. Í staðin keypti ég extra virgin ólífuolíu, smjör og avókadó olíu. Ég byrjaði að versla inn bláber í staðin fyrir epli og sætar appelsínur. Dr. Berg segir að fólk þurfi að passa sig á ávöxtum með hátt sykurmagn, því að með þeim hefjist sykurframleiðsla.
Tvær máltíðir á dag
Ég borða oftast á milli kl. 18 og 19 á kvöldin en svo borða ég ekki aftur fyrr en á tímabilinu 13 til 15 á daginn eftir. Það fer eftir því hvenær ég er búin í sundi og æfingunum. Eftir æfingar og álag þurfum við helst að fá gott prótein og þá elska ég þurran steinbít (harðfisk). Steinbítur er feitur og próteinríkur. (Panta hann frá Breiðdalsvík) 
Í fyrri máltíð dagsins hef ég fisk eða kjöt, eða 3 egg og fullt af grænmeti með lágan sykurstuðul. Mest er það grænt grænmeti sem vex ofan jarðar og blómkál, rauðkál, spergilkál og laukur. Gulrætur einstaka sinnum af því að þær eru trefjaríkar. Einnig tómata, gúrkur og fullt af avókató. Í matinn nota ég líka sítrónur, eplaedik og olíur. Ekki rótargrænmeti eins og kartöflur, sætar kartöflur og rófur.
Er kvöldmaturinn svipaður?
Já oft er það svipað, þá fæ ég mér hamborgara eða kjúklingabringu með grænmetinu. Magnið á kjötinu miða ég við að það komist fyrir í lófa mínum. Þegar maður eldist þarf maður frekar meira en minna af próteini. Ég steiki hamborgara í smjöri eða avókató olíu, eða extra virgin ólífu olíu. Dr. Berg mælir með feitu kjöti en þó ekki of feitu.
Hvaða vökva drekkur þú? 
Ég drekk svona um tvo lítra af vökva á dag, mest vatn en á morgnana fæ ég mér einn kaffibolla með MCT olíu út í ásamt smá rjóma.
Hvað er MCT olía?
MCT olía er unnin úr kókos olíu og er með 100% þríglýseríð meðal langar fitusýrukeðjur en kókosolía er aðeins með 15% þríglýseríð meðal langar fitusýrukeðjur. Það einstaka við meðal langar fitusýrukeðjur þríglýseríðs er að það breytist í ketóna ansi hratt sem innihalda ekki gall úr lifur. Svo að MCT olía framleiðir eingöngu orku en myndr ekki fitu og er miklu auðmeltari. Aðeins er ráðlagt í byrjun að taka eina teskeið af henni á dag.
Það sem er slæmt við ávaxtasafa
Pressaðir safar hafa engar trefjar, það er búið að hita þá upp í 200 gráður og dauðhreinsa. Þá eru öll vítamínin farin og í raun er þá bara eftir sykurvatn.
Kolvetni
Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða fínt eða gróft mjöl því að í niðurbroti meltingarinnar breytist það í sykur. Það er meiri næring í grófu korni en það breytist samt í sykur í meltingunni. Við meltingu breytist fita ekki í fitu í líkamanum en kolvetni og sykur breytast í fitu.
Veislur og boð
Þegar ég fer í veislur og boð borða ég það sem er á borðum. Ég bara passa mig og fæ mér það innan ákveðinna marka. Síðan fer ég á mitt hefðbundna fæði þegar heim kemur. Ég gæti þess að fara ekki út í neina vitleysu. En ef ég verð fyri miklu álagi og þarf að grípa skyndibita fæ ég mér kannski flatköku en ekki súkkulaði.
Í lokin
Við þessa breytingu hjá mér fór vigtin niður og heilsan fór upp. Þegar búið er að ná því takmarki og átta sig á hvað maður þolir og hvað ekki, þarf kannski ekki að vera eins strangur en bara að gæta að sér.
Dr. Eric Berg leggur mikla áherslu á stóra skammta af D-vítamíni. Til að halda heilbrigði segir hann að við þurfum að leggja áherslu á mataræði, göngur, líkamsþjálfun og sjálfsrækt. Með sjálfsrækt meinar hann að halda sambandi við fjölskyldu, vini og kunningja.
Áður birti í Heilsuhringnum upplýsingar um dr. Eric Berg: https://heilsuhringurinn.is/2023/11/08/kynning-a-dr-eric-berg-d-c-og-heilsutengdri-fraedslu-hans.
Ingibjörg Sigfúsdóttir færði í letur í nóvember 2023.
Categories: Annað