Mikilvægi samstillingar heilahvela fyrir börn

  • Samhengislausar bylgjur með takmörkuðu hugsanaferli.
  • Samhangandi heilabylgjur auka getu heilans í heild.

Hemi-Sync er hljóðtækni sem rannsökuð hefur verið í 50 ár af Monroe stofnuninni í Bandaríkjunum í samvinnu við marga virta háskóla, geðlækna, lækna, kennara, verkfræðinga og fleiri bæði innan og utan Bandaríkjanna.

Hemi-Sync nýtist fólki og ekki síst börnum með hverskyns námsörðugleika, ofvirkni, athyglisbrest, einhverfu, lesblindu og heilalömun (cerebral palsy).  Hemi-Sync samstillir heilann samtímis því að breyta bylgjulengd og mynstrum. Athyglin verður einbeittari, minni eykst og fólk hvílist betur meðan það sefur en svefn er mjög mikilvægur þáttur í öllu námsferli. Hemisync hjálpar einhverfum börnum að ná samhæfingu skynsviða.

Einhverf börn eiga í erfiðleikum með að vinna úr taugaboðum og upplýsingum frá einu heilahveli til annars. Árangursríkt nám krefst notkunar á báðum heilahvelum og sama gildir um góð samskipti. Til að ná árangri í stærðfræði þarf að bera kennsl á mynstur og rúm ásamt því að hafa gott minni og gott tak á notkun tákna. Sérhvert námsatriði sem vel tekst til við snertir bæði hægri og vinstri hluta heilans. Því er það svo mikilvægt að samstilla hann.

Áhrif beta tíðninnar á heila barna með athyglisbrest og /eða ofvirkni (ADD) eykur eftirtekt og minnkar á sama tíma hvatlyndi og ofvirkni þeirra. Hin samvirku áhrif skapa ýmisskonar örvun sem hefst í heilaberki og fer yfir í randkerfið þar sem tilfinningum okkar er hrundið af stað.

Metamúsik með Hemi-Sync mynstri getur einnig hjálpað lesblindu fólki og þeim sem lesa hægt þar sem bæði atriðin tengjast villu í tímasetningu milli heilahvelanna. Þegar við lesum eru flestir góðir lesendur með vinstra heilahvel virkt á tíðninni 13 rið og miðlungs mögnun. Lesblindir á hinn bóginn hafa tilhneigingu til að vera með 10 riða tíðni sem er alfa tíðni og fremur háa mögnun þó sumir þeirra hafa óvenjulega lága mögnun. Litli-heili þeirra sem eru lesblindir hefur enn ekki lært samhæfingu og tímasetningu sem tengist innra jafnvægi líkamans. Svo virðist sem samhæf blanda tónsmíða með yfirtónum á beta-tíðni og Hemi-Sync ívafi auðveldi nauðsynlega samstillingu heilans fyrir einbeitta athygli.

Tónlistarumhverfi hjálpar til við að læra af röggsemi fremur en af erfiðismunum.

Lilja Petra Ásgeirsdóttir þýddi og endursagði úr grein Carmen Montoto, Monroe leiðbeinanda frá Puerto Rico

Heimasíða:  https://www.google.is/search?q=Hemi-Sync%C2%AE&oq=Hemi-Sync%C2%AE&aqs=chrome..69i57.15230j0j8&sourceid=chrome&ie=UTF-8



Flokkar:Kjörlækningar, Meðferðir

%d bloggers like this: