Járnskortur – algengasti steinefnaskortur í heimi – járnofhleðsla er hættuleg

Hér fer á eftir endursögn á kjarna myndbandsins: ,,Most Common Mineral Deficiency in the World“ eftir dr. Eric Berg.

Járnskortur getur valdið hárlosi, hárþynningu, hjartsláttartruflunum, þreyttu, dökkum baugum, fótaóeirð, kvefi, sprungnum nöglum, einbeitingarskorti, vefjagigt, skjaldvakabresti, litlu testósteróni, svefnerfiðleikum, jafnvel kæfisvefni, B-12 og D-vítamínskorti, verkjum í vöðvum og liðum.

Þó leitað sé til læknis vegna járnskorts geta gildin mælst eðlileg og sýnt eðlilegt járn og eðlilegan blóðrauða. Læknirinn gæti álitið að ekkert sé að og sagt að þetta sé örugglega ekki járnskortur. En þá er þörf að vita að til er járnskortur án blóðleysis og um alvarlegan járnskort gæti verið að ræða, sem kallað er undir klínískt.

Ferritín getur hjálpað til að greina járnskort. Ferritín er hópur mismunandi próteina sem hjálpa til að bindast járni og geyma og losa járn. Svo ferritín virkar sem stuðpúði ef um of mikið járn er að ræða, sem er mjög hættulegt. Ef ferritín magnið er lágt gefur það vísbendingu um járnskort. Ef sýking eða bólga er í líkamanum verður ferritín magn hærra en það ætti að vera. Það getur flækt hlutina svo það er mjög erfitt að greina þetta.

Það geta verið mismunandi ástæður fyrir skorti á járni. 

Það er algengara að vera með járnskort án blóðleysis en að vera með blóðleysi. Mjög algengt er að járn hafi ekki áhrif á blóðið enda fullt af öðrum hlutum líkamans sem þurfa járn. Til dæmis þarf járn til að byggja upp skjaldkirtilshormón og fyrir taugar til að þær virki rétt og til að búa til dópamín. Skortur á járni getur valdið hjartsláttartruflunum.

Dr. Eric Berg segir: ,,Ég hef talað við þó nokkuð marga sjúklinga sem því miður fundu ekki lækni sem gat kafað nógu djúpt til að hjálpað þeim. Það versta sem læknir getur gert er að segja að þetta sé allt í höfðinu á þér. Það er röng greining og eitthvað sem virkilega getur pirrað og hækkað kortisólið. Þá þarf að finna annan lækni sem getur grafið dýpra. Hér koma upplýsingar svo þú getir hjálpað lækninum“.

Ástæða þess að líkamann vantar járn er fyrst og fremst að það vantar járn í mataræðið. Það er algengt hjá vegan og grænmetisætum því að nýtanlegasta form járns er í dýraafurðum, rauðu kjöti og sjávarfangi. Sú tegund járns sem fæst úr plöntum frásogast ekki auðveldlega. Líkaminn tekur upp 10 sinnum minna úr spínati en kjöti. Í spínati er líka mikið af oxalötum sem geta hindrað frásog járns. Bólgur í maga eða þörmum hindra og minnka möguleika á að járn frásogist, sama á við um áföll, stress, skurðaðgerðir og blæðingar frá sepum í ristlinum sem geta hamlað getu líkamans til að taka upp járn.

Almenn orsök járnskorts eldra fólks eru lágar magasýrur. Það hamlar einnig upptöku annarra steinefna og nefnist saltsýru skortur í maga. Hægt er að tengja lágar sýrur meltingartruflunum, vindi og brjóstsviða. Önnur orsök járnskorts er magahjáveituaðgerðir og of miklar líkamsæfingar, vegna þess að sumt af járninu sem er í vöðvunum eyðist.

Öll sýrubindandi lyf sem bæla sýru geta valdið járnskorti, vegna þess að maginn þarf á saltsýrunni að halda til að geta nýtt járnið. Vefjagigt getur verið ein ástæða fyrir skorti því að þar er þörf fyrir meira járn. Sama á við um konur á meðgöngu og með barn á brjósti. Börn í þroska þurfa aukið járn og fólk með átröskun er vanalega með járnskort.

Mjög algengt er að fýtinsýra hefti nýtingu járns. Fýtinsýra er í öllu korni, brauði, pasta, kexi. Öll þessi kolvetni eru með fýtínsýru sérstaklega heilkorn. Fýtínsýra er líka í baunum.

Efnasambandið tannin er í svörtu tei og kaffi fyrir þá sem drekka mikið af því getur tannin varnað nýtingu járns. Súkkulaði inniheldur pólýfenól sem eru plöntunæringarefni þau geta hamlað nýtingu járns. Pólýfenól er í mörgu öðru t.d. í túrmerik og rauðvíni.

Með DNA prófi er hægt að finna veikleika fólks t.d. ef eitthvað er að genunum eða ef um stökkbreytingu er að ræða. Erfðagallinn sem hefur áhrif á járn, B-12 og fólatskort er skammstafaður MTHFR. Fólat er mjög mikilvægt til að byggja upp rauðu blóðkornin. Ef þú veist ekki um að það getur verið erfðafræðilegur veikleiki getur þú farið í marga hringi þegar þú reynir að laga vandamálið með því að vinna í öllum þessum hlutum.

Ef það er stökkbreyting í genum getur verið lausn að taka meira inn og sjá hvort það ráði ekki við það. Stundum tekur fólk ekki nóg eða tekur það ekki í nógu langan tíma til að sjá breytingar. Það getur tekið mánuði að laga alvarlegan járnskort.

Einn vandi er of mikið kalk (kalsíum) eða magnesíum og drekka of mikið af mjólk. Magnesíum og kalk í mjólk geta hamlað járni vegna þess að járnið er í nokkurs konar samkeppni milli sýkla og örvera. Örverur geta étið járn. Ef þú ert með undirklíniska sýkingu hvort sem það er Epstein Barr vírus eða eitthvað annað gæti það verið ástæða þess að járnið er lágt. Aspas, spínat og möndlur innihalda oxalöt sem geta hindrað járn.

Nú er kominn langur listi yfir ástæður sem geta valdið járnskorti trúlega muntu tengja það við blóðrannsókn til að sjá hvað er í gangi. Hvað varðar leiðréttingu á járnskorti veit ég að fólk tekur inn bætiefni og hreint járn ásamt fleiru ég segi ekki að það virki. Ég ráðlegg alltaf fólki að fá járnið fyrst úr mat eins og rauðu kjöti, lifur og skelfiski.

Að skilgreina af hverju vantar járn. Í fyrsta lagi ef magasýra er lítil þá er byrjað á að taka inn eplaedik og C-vítamíni, bæta líka við salati eða súrkáli. Hægt er að taka inn lifrar- eða milta töflur. Það er hægt að fá þurrkað milta þykkni sem virðist virka mjög vel sem járn fæðubótarefni. Gerðu þér grein fyrir að ef um mikinn skort er að ræða getur það tekið langan tíma og margar vikur að leiðrétta hann.

Á hinn bóginn ef það er járnofhleðsla   

Ef um járnofhleðslu er að ræða sem er það ástand þegar líkaminn framleiðir of mikið járn, sem getur verið mjög hættulegt fyrir lifur, hjarta og heila. Slíkt er hægt að finna með blóðprufu. Ef um þann vanda er að ræða eru nokkrir hlutir sem er gott að vita:

Eimað vatn getur dregið út steinefni (það verður að nota glerkönnu eða könnu úr ryðfríu stáli). Áttaðu þig á að það mun draga út fleiri steinefni en járn, en það má bæta með því að taka inn steinefni án járns. Túrmerik getur virkað sem bindiefni sem bindur járnið og hjálpað til að draga járn úr líkamanum. Það er gott að byrja á túrmerik og kakóbaunum því að í hvoru tveggja er mikið af pólýfenólum sem geta hjálpað við að binda járnið. Svart te getur líka hjálpað í því er mikið tanninum sem bindur járn. Einnig er hægt að taka fýtínsýru til að binda og fjarlægja járn úr líkamanum. Það er hægt að fá fýtínsýru í formi sem kallað er ip6, það er í meginatriðum fýtinsýra.

Í lok myndbandsins segir Eric Berg: ,,Nú hefur þú fengið mikið af upplýsingum en ég held að mesta þörfin fyrir þig sé að læra hvernig á að bæta meltingarkerfið vegna þess að það er svo margt sem getur farið úrskeiðis í meltingarveginum“.

Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi, stytti og endursagði í nóvember 2023 myndbandið: ,,Most Common Mineral Deficiency in the World“ eftir dr. Eric Berg DC. https://www.youtube.com/watch?v=6RPRzN4kTWI

Myndir eru teknar úr myndbandinu

Hér má lesa upplýsingar um dr. Eric Berg https://heilsuhringurinn.is/2023/11/08/kynning-a-dr-eric-berg-d-c-og-heilsutengdri-fraedslu-hans/



Categories: Næring

Tags: , , , ,