Sóltún Heimahreyfing

Sóltún Heima sérhæfir sig í þjónustu og lausnum fyrir fólk á besta aldri sem vill efla heilsu, vellíðan og njóta daglegs lífs. Sóltún Heima býður meðal annars upp á DigiRehab heimahreyfingu sem er byltingarkennd nýjung á sviði velferðartækni. Heimahreyfingin byggir á styrktaræfingakerfi sem er hannað af dönskum sjúkraþjálfurum. Æfingakerfið hefur verið notað í nokkur ár í Danmörku og árangurinn verið undraverður. Nú þegar eru 2000 manns sem fá heimahreyfingu og sífellt fjölgar í hópnum. Rannsóknir hafa sýnt að 3 af hverjum 4 fá bætta heilsu, betri hreyfifærni,verða líkamlega sterkari og þurfa minni aðstoð við daglegar athafnir.

Heimahreyfing hentar einstaklingum sem búa heima en vilja bæta styrk og heilsu til að vera betur sjálfbjarga og þurfa minni heimaþjónustu eða hjálp frá aðstandendum. Heimahreyfingin leggur áherslu á styrktar- og jafnvægisæfingar. Leiðbeinandi kemur heim 2x í viku í 20 mínútur í senn og aðstoðar við æfingar. Í fyrstu heimsókn er gert styrktaræfingapróf og út frá því reiknar DigiRehab sérsniðið æfingaprógramm. Á 6 vikna fresti er gert styrktaræfingapróf og æfingaáætlunin uppfærð. Til að ná árangri er miðað við 3ja mánaðar æfingaprógramm. Einn mánuður kostar 34.900 kr. Engin tæknikunnátta er þörf, né internettenging eða eign á spjaldtölvu, við sjáum um það. Leiðbeinandinn er með meðferðis spjaldtölvu til að styðja við æfingarnar. En eftir þann tíma er hægt að halda áfram  í áskrift með aðstoð leiðbeinanda 1-2x í mánuði eða kaupa áskrift að kerfinu og gera æfingarnar alveg sjálfur. Heimahreyfing er í boði fyrir alla á höfuðborgarsvæðinu frá og með lok apríl. Skráning er hafin.

Auk heimahreyfingar býður Sóltún Heima upp á fjölbreytta leikfimihópa fyrir 60+.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Sóltúns Heima: http://www.soltunheima.is og facebook https://www.facebook.com/soltunheima/ Einnig má senda fyrirspurn á netfangið heimahreyfing@soltunheima.is eða hringja í síma 5631400.

Ásdís Halldórsdóttir er íþróttafræðingur



Flokkar:Hreyfing

Flokkar/Tögg, ,