Lækning við sykursýki, getur það verið satt?

Dr. Jaime Dy-Liacco læknir í efnaskiptum hefur lengi leitað lausna vegna  hættulega og banvænna sjúkdóma. Sykursýki er eitt af þeim enda stundum lífshættulegur sjúkdómur sem með tímanum getur haft áhrif á alla líkamshluta þar á meðal valdið nýrnaskemmdum, taugaskemmdum, líkamstjóni og blindu.

Samkvæmt Alþjóða sykursýkisamtökunum  (International Diabetes Federation)  fer sykursýki vaxandi á Filippseyjum þátt fyrir þúsundir rannsókna frá mismunandi löndum hefur engin lækning fundist við sykursýki af tegund 1, aðeins meðferð með insúlíni.

Nú hefur læknir frá Philipseyjum komið fram með mixtúru sem hann telur að geti hjálpað til í baráttunni. Dr. Jaime Dy-Liacco er læknir í efnaskiptasjúkdómum sem hefur tileinkað líf sitt því að finna lækningu við þessum banvæna sjúkdómi. Samkvæmt hinum 82 ára lækni er orsök sykursýki ekki sú að fólk borðar sætindi, heldur skortur á sex ákveðnum steinefnum. Ef einstaklingur borðar nægjanlega mikið magn af mat sem inniheldur þessi steinefni getur hann borðað eins mikið af sætindum og hann vill. 

Hann útbjó þessvegna mixtúru sem inniheldur þau steinefnin sem hann telur nauðsynleg til þess að sigrast á sjúkdómnum.

  • Innihaldsefni:

  • – 2 stykki chilipipar (siling labuyo)
  • – 2 stykki hrá egg
  • – 1/2 tsk sjávarsalt

Undirbúningur:  Klippa og mala Chilipiparinn og blanda honum vel saman við eggin, salta og drekka.

Greinin er þýdd, stytt og endursögð af heimasíðunni: World Views. Slóðin er : http://www.worldviewsph.com/2016/06/filipino-doctor-found-cure-for-diabetes.html?m=1

Finna má upplýsingar Dr.Dy Liacco á þessari slóð: http://wellnesscounselor.blogspot.is/2013/01/dr-dy-liacco-on-curing-incurable.html   og hér er slóð á upprunalegu greinina á heimasíðunni Tribune Post:  http://theonlytribunepost.blogspot.is/2013/08/the-power-of-alternative-medicine-and.html

I.S.  10. júní 2016



Flokkar:Annað, Ýmislegt

Flokkar/Tögg,

%d bloggers like this: