Ótrúleg heilsubót eftir notkun Aloe Vera safa

Töfradrykkur segir Kristín Ástríður Pálsdóttir sem fyrir tæpum 3 árum heyrði í útvarpinu rætt við konu, sem sagði frá konu sem losnaði við slitgigt og veru í hjólasól eftir notkun Aloe Vera safans. Kristín Ástíður varð sér strax úti um ,,Aloe Berry Nectar“ safa og byrjaði að taka inn einn desílítra á hverjum morgni á fastandi maga. Ekki leið á löngu þar til hún fann að líkamleg líðan varð betri og hægðir urðu eðlilegar eftir margra ára hægðatregðu og harðlífi. Hún hélt áfram að taka inn sama magn af safanum og að tveimur árum liðnum hætti þvagleki sem hafði gert henni lífið leitt árum saman. Áður var Kristín Ástríður með húðþurrk og sprungur á höndum en nú er húðin orðin silkimjúk. Ekki má gleyma því að einnig er kominn glans á hárið sem ekki var áður en inntaka safans hófst.

Í leiðbeiningum sem fylgja Aloe Vera vörum frá fyrirtækinu Aloelixir, S.L. er fólk með sykursýki, blöðrubólgu og gallblöðru vandamál varað við að drekka Aloe Vera safa án samráðs við lækni. Ófrískum konum er ráðlagt að varast efnið Aloin. Aðeins safi sem er unninn eingöngu úr innriblöðum jurtarinnar er laus við það efni.

Nánari upplýsingar um það á netfangi: purealoe@wanadoo.es

Grein skrifuð árið 2008.



Flokkar:Reynslusögur