Ilmkjarnaolíur – Aromatherapy

Heilbrigður líkami og hugur er ómetanleg gjöf.Líkaminn er þannig úr garði gerður að hann er þess umkominn að vernda og endurheimta heilbrigði ef honum er gefið tækifæri til þess. Ilmkjarnaolíur geta gert mikið gagn við að viðhalda heilbrigði. Ilmolíur hafa fylgt manninum í gegnum aldirnar til yndisauka og til að bæta andlega og líkamlega heilsu. Ilmlækningar eru meðal elstu lækningaaðferða sem til eru og fundist hefur myndletur allt frá því um 4500 f. Kr. sem staðfestir að Forn-Egyptar notuðu ilmkjarnaolíur til lækninga.

Grikkir notuðu kraft úr jurtunum í ilmböð, ilmnudd og til græðslu sára. Litið hefur verið á ilmkjarnaolíur sem „lyfjaskáp áttúrunnar“ og þær notaðar til varnar gegn andlegu og líkamlegu ójafnvægi, ýmist sem ilmur til innöndunar eða seyði í nuddolíur og böð. Ilmkjarnaolíumeðferð er góð leið til að njóta þess besta sem sjálf náttúran hefur upp á að bjóða. Segja má að með henni sé komið beint að kjarna málsins hvað varðar náttúrulega aðferð til að efla bæði andlega og líkamlega heilsu. Allar ilmkjarnaolíur eru sótthreinsandi, sumar þeirra vinna gegn veirum, bakteríum og sveppum. Olían fæst við eimingu á þeim hlutum jurtarinnar er innihalda efnin sem sóst er eftir, t.d. trjám, berki, berjum, fræjum, blöðum, rótum og ávöxtum.

Snemma á þessari öld var orðið „ilmþerapía“ (aromathérapie) myndað af frönskum snyrtivöruefnafræðingi, prófessor Gottefossé, sem fyrstur manna gerði sér fulla grein fyrir lækningaeiginleikum ilmkjarnaolía. Hann segir frá því hvernig hann af tilviljun, eftir að hafa brennt sig illa á hendinni, hafi stungið henni niður í lavenderolíu og undrast hversu fljótt sársaukinn hvarf og húðin gréri án þess að blöðrur mynduðust. Síðar þróuðu dr. Jean Valnet og Marguerite Maury meðferðina og hafa aflað henni viðurkenningar sem læknislist.

Nútímarannsóknir hafa staðfest lækningaeiginleika kjarnaolíu, og nú í dag eru stundaðar vísindalegar rannsóknir á efnum sem ilmkjarnaolíurnar innihalda, og eru þessar rannsóknir stundaðar t. d. í Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu og víða annar staðar. Auðvelt er að stunda ilmmeðferð í heimahúsum. Olíu til sjálfshjálpar má anda að sér, nota í bað, og sem nuddolíu á húð. Til innöndunar eru olíurnar sérstaklega áhrifaríkar, látnir eru einn til tveir dropar af tiltekinni olíu í skál með rjúkandi heitu vatni. Handklæði er breitt yfir höfuðið og skálina og eimnum andað að sér í u.þ.b. 10 mín.

Til notkunar í bað eru látnir 4-6 dropar af tiltekinni ilmkjarnaolíu í eina teskeið með rjóma eða hunangi sem síðan er blandað í baðið til að ilmkjarnaolían blandist baðvatninu vel en sitji ekki bara ofaná.

Til að nudda á húð, er mjög gott að húðin sé heit og rök þegar olíunni er nuddað á hana. Þegar blönduð er nuddolía eru hlutföllin 50 ml af grunnolíu + 15 dropar af ilmkjarnaolíum. Grunnolíur eru t.d. möndluolía, jarðhnetuolía eða vínberjaolía þrúgukjarnaolía, grapeseed oil) og síðan er valið úr 34 tegundum af ilmkjarnaolíum, en aldrei skal setja fleiri en 15 dropa í 50 ml grunnolíu. Margar mismunandi blöndur af ilmkjarnaolíum má nota t.d. rosemary 5 dropa, eucalyptus 4 dropa og lavender 6 dropa í 50 ml af möndluolíu þessi blanda er fyrir vöðva og er einnig verkjastillandi. Ilmkjarnaolíur eru flokkaðar í þrjá flokka, hátóna (top notes), miðtóna (middle notes), lágtóna (base notes).

Hátóna olíur hafa örvandi og upplyftandi áhrif. Miðtóna olíur hafa áhrif á flest líkamskerfi og koma jafnvægi á líkamann. Lágtóna olíur hafa slakandi og róandi áhrif. Olíur er fáanlegar í sumum apótekum og heilsuverslunum. Sérstakrar varúðar skal gætt við kaup á olíum því þær þurfa að vera úr hreinum jurtum og því verður að kaupa þær hjá viðurkenndum söluaðila. Mestu máli skiptir að nota hreinar olíur – gerviefni gefa engan árangur. Ilmkjarnaolíur eru greindar sem líf (biotic-profile), en gerviefni eru á móti lífi (antibiotic/ anti-life). Hreinar ilmkjarnaolíur er hægt að nota beint á lifandi vefi án eða með mjög litlum aukaverkunum.

Í sumum tilvikum getur mannslíkaminn aðlagast notkun gerviefna, en krefst þá alltaf stærri og stærri skammta. Þetta gerist ekki með notkun ilmkjarnaolía. Sama magn heldur áfram að styrkja og byggja upp lifandi vefi og vinna gegn sýklum. Ilmkjarnaolíur eru notaðar sem bragðefni í matvælaframleiðslu (peppermint og eucalyptus í sælgætisframleiðslu), í lyfjaframleiðslu (tannkrem, hóstasaft, munnskol o.s.frv.) og til ilmvatnsframleiðslu. Margar þessar olíur eru dýrar þar sem óhemjumagn af jurtum þarf til að framleiða jafnvel lítinn skammt af kjarnaolíu, t.d. til að búa til einn dropa að rósaolíu þarf 80 rósaknúmpa. En til sjálfshjálpar þarf olían ekki að vera dýr, þar sem hún er mjög virk og lítið magn dregur langt. Hér að neðan veiti ég grunnupplýsingar um tíu ilmkjarnaolíur, og megi sú vitneskja verða lesendum gott innlegg til aukinnar vellíðunar og ánægju.

Lavender (Lavandula angustifolia) Lofnarblóm Er miðtóna, plöntuhluti; blómið. Blandast vel með öllum olíum. Lavender er almennt notuð með í flest allar blöndur vegna þess hve góður jafnvægisstillir hún er. Lavender er góð gegn; bruna, sólbruna, þurrkablettum, exemi, unglingabólum. Hún er róandi og virkar gegn kvíða, þunglyndi, svefnleysi, hormónaójafnvægi, migreni, höfuðverkjum, meltingartruflunum s.s. niðurgangi.

Rosemary (Rosmarinus off.ct,cineol) Rosmarín er miðtóna, plöntuhluti; blómtoppur og laufblöð.Blandast vel með lavender og peppermint. Rosemary er notuð við hverskonar vöðvabólguvandamálum, hún örvar blóðrás, er vatnslosandi, og vinnur gegn appelsínuhúð (cellulitis), bjúg, liðverkjum, gigt, höfuðverkjum, minnisleysi, er bólgueyðandi. Eykur einbeitingu, er gegn þunglyndi, lágum blóðþrýstingi, meltingartruflunum hvers konar s.s. harðlífi, vindgangi og niðurgangi.

Peppermint (Mentha piperita) Piparmynta Er miðtóna. Plöntuhluti; blómatoppur og laufblöð. Blandast vel með rosemary og lemon. Peppermint er oft kölluð höfuð hreinsir. Hún er notuð þegar flensa er að búa um sig, og þá til innöndunar. Fólk sem er með lágan blóðþrýsting ætti ekki að nota peppermint, því hún lækkar blóðþrýsting, en er því góð fyrir þá sem hafa háan blóðþrýsting. Peppermint er mikið notuð til að dreyfa t.d. vöðvaverki, við höfuðverkjum og migreni. Einnig er hún notuð við gall- og lifrarvandamálum, gigt og æðahnútum.

Juniper (Juniperus communis) EinirEr miðtóna. Plöntuhluti; berin sem juniper kjarrið gefur af sér. Blandast vel með lavender, sandalwood. Juniper er hreinsandi ( hjálpar til við hreinsun eiturefna úr líkamanum), notuð gegn unglingabólum, kýlum, exemi og appelsínuhúð(cellulitis), er vatnslosandi, styrkir taugakerfið, léttir á kvíða og streitu. Sandalwood og Juniper saman er góð blanda við exemi og þurrki á húð.

Sandalwood (Santalum album) Sandalviður Er lágtóna. Plöntuhluti; stofninn, olían er inni í trénu Blandast vel með lavender, rosemary. Sandalwood er mikil jafnvægisjurt, notuð við þunglyngi, taugaspennu, streitu, svefnleysi, húðþurrki, psoriasis, magakrampa, niðurgangi, ógleði og hormónaójafnvægi. Sandalwood er mjög hreinsandi. Og hún er einnig notuð til slökunar og við íhugun.

Ylang Ylang (Cananga odorata var.genuina) Er lágtóna. Plöntuhluti; blómið. Blandast vel með lavender, rose, sandalwood Ylang ylang er mikið notuð í ilmvötn. Þessi olía er mjög gagnleg við háum blóðþrýstingi, þunglyndi, spennu, svefnleysi, getuleysi og tíðavandamálum.

Rose (Rose damascena) Rós Er lágtóna. Plöntuhluti; krónublöðin. Blandast vel með öllum olíum. Þessi olía er mjög dýr en það þarf mjög lítið af henni og þessa olíu má nota á kornabörn. Rose er mjög góð fyrir húðina og einnig fyrir sálina. Sagt er að Roseolía opni hjartað. Ef fólk á erfitt með að tjá sig er gott að setja Rose á efri vör til að auðvelda samskipti. Er notuð við lélegri blóðrás, harðlífi, lifrarvandamálum, magabólgu, vegna streitu, þunglyndi, svefnleysi, taugaspennu, höfuðverkjum, kvíða, húðvandamálum, sérstaklega þurrki og viðkvæmri húð, einnig er hún kynörvandi.

Lemon (Citrus limon) Sítróna. Er hátóna. Plöntuhluti; börkurinn Blandast vel með lavender, pepparmint, rose. Lemon er hressandi og endurnærandi olía. Er notuð við lélegri blóðrás, styrkir sogæðakerfið, örvar meltinguna, sótthreinsandi, heldur hrukkum í skefjum, við streitu höfuðverk, skordýrabiti, hún er vatnslosandi og eykur einbeitingu.

Eucalyptus (Eucalyptus globulus) blágúmmítré. Er hátóna. Plönthluti; laufblöðin. Blandast vel með lavender, tea tree, rosemary. Eucalyptus er sótthreinsandi og bakteríu drepandi, hefur kælandi áhrif á sumrin, en verjandi áhrif á veturna, hún er einnig notuð við bruna, herpes, skordýrabiti, gigt, lús, vöðvabólgu, blöðrubólgu, flensu, lágum blóðþrýstingi, og er vatnslosandi. Þessi olía er hitalækkandi.

Tea Tree (Melaleuca alternifolia) Er hátóna. Plöntuhluti; laufblöðin. Blandast vel með Eucalyptus, lemon. Tea tree olían er sú besta við hvers konar sýkingum s.s ígerð, fótasvepp, bakteríusýkingu, blöðrubólgu. Einnig er hún notuð við áblæstri (herpes), skordýrabiti, gegn unglingabólum, sólbruna og hrúðri á húð.

Öryggisatriði:
Hver og ein ilmkjarnaolía er kraftmikið náttúruafl. Aðgát skal höfð við notkun þeirra. Hafa ber eftirfarandi í huga: Þegar um þungun er að ræða eru nokkrar olíur sem ekki má nota og þær eru: Aniseed, basil, camfor, clove, hyssop, cinnamon, lemongrass, nutmeg, oreganum, parsly seed, sage, savory, tharragon, thyme, clary sage, juniper. Clary sage og juniper má nota eftir 4. mánuð meðgöngu.

1. Ef þú ert þunguð, flogaveik(ur), þjáist af of háum blóðþrýstingi eða einhverjum öðrum
sjúkdómi, vinsamlegast ráðfærðu þig við lækni eða ilmþerapista áður en þú notar ilmkjarnaolíur.
2. Ilmkjarnaolíur eru ekki til notkunar innvortis. Forðist að þær komist í snertingu við augun.
3. Settu aldrei óþynntar ilmkjarnaolíur (nema Lavender og Tea Tree) á húðina, því þær geta valdið ertingu eða ofnæmi.
4. Geymdu þær þar sem börn og húsdýr ná ekki til.
5. Geymdu þær fjarri hita, ljósi, í dökkum glösum og notaðu þær innan eins árs frá opnun. Ath. Cítrusilmkjarnaolíur þarf  að nota innan sex mánaða frá opnun umbúða.
6. Eitt ber að hafa í huga. Að þetta eru sterk jurtaefni sem eru unnin úr kjarna plöntunnar og segja má að við séum með sál plöntunnar í flösku. Hafið skammtana ekki of sterka. Samskiptum líkama, huga og sálar, þessara þriggja þátta, er þannig farið að jákvæð afstaða eins hefur áhrif á annan, þannig að ef tekst að halda hugarfarinu jákvæðu með bjartsýni er það líklegra að halda megi heilbrigði og sálarstyrk.

Það er löngu kominn tími til að svifta hulunni af ilmkjarnaolíum. Og geta þeir sem áhugasamir eru auðveldlega notað þær, notið áhrifa þeirra og uppskorið ánægju og vellíðan sem er undirstaða heilbrigði. Ég lýk þessari grein með að vitna í Dr. Marguerite Maury. „En mesta furðu vekja áhrif ilmsins á andlegt og sálrænt ástand einstaklingsins. Skynjunin skýrist og verður næmari, Og tilfinning vaknar um að sjón sé orðin næmari og dómgreind því hreinni.“

Heimildir: Practical aromatherapy eftir Shirley Price, The Illustrated encyclopedia of essential oils, eftir Juliu Lawless, Náttúrulæknir heimilanna, aðalritstjóri Dr. Andrew Stanwey.

Höfundur: Sigrún Sól Sólmundsdóttir – árið 2000



Flokkar:Meðferðir

%d bloggers like this: