Hér eru þýddir og endursagðir nokkrir athyglisverðir punkta úr myndbandinu ,,Reveals of the most useless supplements” eftir doctor Steven Gundry af ,,The Dr. Gundry Podcast” https://www.youtube.com/watch?v=4-HKSorkJDA

E-vítamín er mjög mikilvægt andoxunarefni. Fyrir mörgum árum síðan var gerð mjög þekkt rannsókn á reykingafólki og E-vítamíni, sem snerist um það sem kallast oxunarálag. Oxunarálag er í raun ein helsta ástæða þess að reykingar eru svo slæmar. Það þótti góð hugmynd að gefa fólki sem reykti E-vítamín af því að E-vítamín er andoxunarefni og var haldið að það myndi komi í veg fyrir oxunarálag af völdum reykinga. Það var ekki raunin.
Rannsakendurnir komust að því að reykingafólk sem tók inn E-vítamín þróuðu með sér meira lungnakrabbamein en það reykingafólk sem ekki tók inn E-vítamín. Í mörg ár var talið að E-vítamín væri orsök þess. Seinna kom í ljós að þegar andoxunarefni sameinast súrefni breytist það og verður að for-oxunarefni. Sama skeður ef ekki er nóg C-vítamín í líkamanum þá oxast E-vítamínið og verður að for- oxunarefni.
Rannsóknin sýndi að reykingafólk almennt skorti C-vítamín og að það var ekki E-vítamínið sem orsakaði krabbameinið heldur skortur á C-vítamíni.
Ýmis konar E-vítamín eru til eins og delta-form og gamma-form sem geta í raun verið mjög áhrifarík við að bæla niður vöxt krabbameinsfruma. Ef þú ætlar að taka inn E-vítamín sem gerir gagn veldu þá blandað E-vítamín með tókótríenól (tocotrienol) og tókóferól (tocopherol).
Kalk (kalsíum) nýtist ekki ef ekki er nóg D-vítamín. Það er engin þörf fyrir fólk að taka inn kalktöflur. Vandamálið við flesta kalkuppbót er að það þarf að hafa nægilegt magn af D-vítamíni til að það berist til beinanna. Einnig þarf K2 vítamín sem hjálpar við að bera kalsíum í beinin. Dr. Gundry segir að um 80% af sjúklingum hans í Suður-Kaliforníu skorti D-vítamín þegar þeir komi fyrst. Mikill fjöldi þessa fólks er með beinminnkun eða beinþynningu. All flestir eru þó að taka inn kalk en enginn tekur nóg af D-vítamíni sem er eina leiðin til að koma kalki í beinin. Dr. Gundry segir: ,,Ekki eyða peningum í kalk”.
Það fyrsta sem þarft að gera er að ná upp D-vítamíninu í blóðinu. Það er lágmark að taka 5.000 alþjóðaeiningar af D3-vítamíni á dag.
Í Háskólanum í San Diego í Kaliforníu er ein stærsta vítamín rannsóknardeild Bandaríkjanna, sem ráðleggur að taka inn 9.600 alþjóðaeiningar af D3- vítamíni á dag, sem í raun eru 10.000 alþjóðaeiningar á dag. Dr. Gundry fylgir þessum og ráðleggur það flestum sínum sjúklingum.
Vikulega segist dr.Gundry hafa hitt sjúklinga með 60 nanógrömm af D3-vítamíni í blóði og oftast hafi velviljandi heilbrigðisstarfsmenn verið búnir að segja að þetta fólk væri með D-vítamíneitrun. Ekkert slíkt getur skeð af svo litlu magni. Reynar eru 60 nanógrömm í blóði af D-vítamíni allt of lágt til að vera áhrifaríkt. Hann segist aldrei hafa orðið var við eituráhrif af D-vítamín þó tekið hafi verið allt upp í 40.000 alþjóðaeiningar á dag. Bæði ,,Quest og Cleveland Heart Lab” mæla með því að eðlilegt magn D3-vítamíns í blóði sé 150 nanógrömm í millílítra blóðs.
Vitamin K1 og K2 eru í grænu grænmeti. Að borða salat er frábær leið til að fá K -vítamín inn í mataræðið en önnur leið er líka að borða smáfisk eins og ansjósur, hvort sem eru sardínur eða muled. Það er frábær uppspretta kalks. Dr. Gundry heimsótti lítinn bæ á suðurhluta Ítalíu sem heitir Achiro, þar er fleira fólk en annarsstaðar í heiminum yfir 100 ára, þrjátíu prósent íbúanna eru yfir 100 ára. Það sem er heillandi við þetta fólk sem eru fiskimenn er að þeir borða ansjósur alla daga ásamt mikilli ólífuolíu og miklu af rósmarín.
B12 og fólat. Um 50 % mannskyns eru með eina eða fleiri stökkbreytingar á því sem kallast MTHFR gen. Það er ensím sem kallast metýlentetrahýdró fólat redúktasa og gegnir hlutverki við vinnslu amínósýra. Dr. Gundry segir að svona stökkbreyting geti verið ástæðan fyrir: kvíða, þunglyndi, sjálfsvígshugsun, líka ástæða fyrir fíkn í reykingar og áfengi.
Þessi MTHFR gen valda því að líkaminn býr til ensím sem tengja metýlhóp við B12- vítamín og fólinsýru og breyta þeim í virkt vítamín form sem kallast metýl B12 eða í metýlfólat og jafnvel metýl kóbalamín sem eru virk form. En sá sem er með þessar stökkbreytingar gæti gleypt allt B12 vítamín og fólinsýru í heiminum og borðað B12- og fólat ríkan mat en samt ekki búið til virkt efni sem nýtist. Vegna þess að það vantar ensímið. Það góða er að nú hægt að breyta þessu því að það fást methyleruð B-vítamín, bæði metýl B12 og metýlfólat.
Til að líkaminn taki upp B12 vítamín þarfa að hafa viðtaka í neðri hluta þarmanna sem kallast innri þáttur (intrinsic factor) sem opnar hurðina, grípur B12 og setur í blóðrásina. Því miður eru margir sem ekki hafa innri þátt (intrinsic factor) og ef hann vantar kemst B12 ekki í blóðrásina. Áður fyrr var slíkt kallað skaðlegt blóðleysi (pernicious anemia) og fólki gefnar B12 sprautur. Nú er hægt að kaupa tungutöflur með metýl B12 og metýlfólati, Ef það er látið leysast upp undir tungunni fer það beint í blóðrásina.
Stórir skammtar af B6-vítamíni hafa verið tengdir taugakvillum. Dr. Gundry segist einu sinni hafa fengið til sín sjúkling sem var á mjög stórum skammti af B6-vítamíni sem orsakaði taugakvilla. Þegar B6 vítamíni var tekið af honum batnaði honum. Dr. Gundry ráðleggur að ef notað er B6 vítamín að velja þá efni með skammstöfun P five P eða PLP það valdi ekki skaða.
C-vítamín í fituuppbót frásogast betur en venjulegt. Það er meira af askorbínsýru í fitu forminu en í venjulegu C-vítamíni. C-vítamíni er eitt af fáum vítamínum sem líkaminn framleiðir ekki sjálfur og mannveran er ein af fáum dýrum jarðar sem ekki býr til eigið C-vítamín. Hérumbil öll önnur dýr framleiða stöðugt C-vítamíni. Fimm gen búa til ensím sem taka glúkósa/ sykur og breyta í C-vítamín. Fólk hefur öll þessi fimm gen en fimmta genið í framleiðslu keðjunni er ensím og kallað draugagen. Það er óvirkt í fólki einnig óvirkt í naggrísum og sumum tegundum af öpum.
Tilraunir voru gerðar á rottum, þeim var erfðabreytt þannig að þær höfðu draugagen alveg eins og fólk. Þessar erfðabreyttu rottur reyndust aðeins hafa helmings lífslíkur miðað við eðlilegu rotturnar sem bjuggu til sitt eigið C-vítamín. En þegar erfðabreyttu rottunum var gefið C-vítamín í vatn sem þær gátu drukkið bæði daga og nætur lifðu þær eins lengi og rotturnar sem bjuggu til sitt eigið C-vítamín. Miðað við þessar rotturannsóknir væri ávinningur fyrir fólk að taka stöðugt inn C-vítamín það gæti lengt lífaldur.
Því miður er C-vítamín vatnsleysanlegt vítamín og er horfið úr líkamanum eftir um 4 klukkutíma. Svo að stöðug er þörf að endurnýja það. Hægt er að taka 500 milligrömm fjórum sinnum á dag. Tungutöflur eru fáanlegar. Sjálfur tekur dr. Gundry 1000 milligrömm af C-vítamíni tvisvar á dag.
Æðarnar beygjast og svegjast stöðugt og kollagen eykur togstyrk þeirra og hjálpar til að koma í veg fyrir sprungur. En ef C-vítamín vantar koma sprungur og brot í kollagenið. Þannig að ef ekki er stöðugt framboð af C-vítamíni í líkamanum myndast þessar sprungur bæði í æðunum og húðinni. Vegna oxunarálags eyðir reykingafólk miklu C-vítamini og hefur því ekkert C-vítamín tiltækt til að laga sprungurnar í kollageninu. Þetta er ástæðan fyrir því að megnið af sjúkdómum í kransæðum reykingafólks er í beygjunum æðanna og þess vegna er margt reykingafólk með mikið af hrukkum.
Dr. Gundry segist hafa verið spurður hvort liða-fæðubótarefni séu gagnslaus. Hann svarar því þannig að sýnt hafi verið fram á gagn fjölda liða fæðubótarefna með lyfleysu samanburðarrannsóknum og tekur sem dæmi ,,Mighty Flex”, sem rannsóknarstofa hans framleiðir. Efnasamband þess efnis fannst í tiltekinni tegund af gúrkum og var rannsakað í lyfleysu -stýrðri rannsókn á mönnum. Efnið bætir hreyfanleika liðanna og það bætir heilsu liðanna.
Lyfleysu stýrðar rannsóknir sýna að efni eins og glúkósamín og kondróitín súlfat, MSM virkar líka. Það áhugaverðasta er að þau virka vegna þess að þau binda lektínið í meltingarveginum. Lektín og lekir þarmar er hin raunverulega undirliggjandi orsök liðagigtar. Svo að þessi efnasambönd virka ekki með því að komast inn í liðina heldur vinna þau með lektinið í fæðunni. Lektín er í raun orsök óþæginda í liðum. Þessu þarf fólk að átta sig á.
Rannsókn eftir rannsókn hefur sannað að lekir þarmar eru orsök beinþynningar. Dr. Gundry segir að læknastofa hans hafi náð árangri við að bæta beinmissi og beinþynningu með meðhöndlun lekra þarma. Þetta myndband hans fjallar um leka þarma og hvernig eigi að koma í veg fyrir þá. ,,What is leaky gut, and how do you prevent it?” https://www.youtube.com/watch?v=zqFEtAUGItg
Ingibjörg Sigfúsdóttir endursagði nokkra athyglisverða punkta úr prodcasti dr. Gundry: Dr. Gundry REVEALS 3 OF The Most USELESS Supplements
Höfundur myndbandsins:
Dr. Steven R. Gundry er fæddur 11. júlí 1950, hann er fyrrverandi hjarta- og brjóstholdsskurðlæknir og prófessor við ,,Loma Linda University School of Medicine”. Dr. Gundry söðlaði um á miðjum aldri og stofnaði einkastofuna: ,,International Heart & Lung Institute í Palm Springs, Kaliforníu”. Hann rekur tilraunastofu sem meðal annars rannsakar áhrif af lektín lausu mataræði og hefur fundið út að lektín, tegund plöntupróteina sem finnast í fjölmörgum matvælum, valdi bólgu sem leiði til margra nútímasjúkdóma og hann ráðleggur að forðast mat sem inniheldur lektín. Dr. Gundry hefur skrifað margar bækur um heilsutengd efni og sjúkdóma. Upplýsingar á síðunni: https://en.wikipedia.org/wiki/Steven_Gundry
Prodcast hans: https://www.youtube.com/c/DrGundry fer í loftið tvisvar í viku.
Birt í janúar 2025