Rætt við Svövu Halldórsdóttur um englareiki, dáleiðslu og heilun

Mörg undanfarin ár hefur verið haldin Heimsljós messa í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ, í ár var það dagana 14. og 15. september. Að venju kom þar saman fjöldi fólks sem kynnti leiðir til að bæta bæði líkamlega- og andlega heilsu. Heilsuhringurinn leit við hjá nokkrum aðilum og leitaði upplýsinga. Við byrjuðum á að spyrja Svövu Halldórsdóttur Englareikimeistar, heilara og dáleiðara um hvað hafi leitt hana inn á þessar brautir. Nú fær Svava orðið:

Ung vildi ég hjálpa og byrjaði að nudda fólk og fólkið taði um að ég hefði svo heitar hendur. Þegar ég var 16 ára dó amma mín sem var mikið trúuð og andlega þenkjandi kona og það held ég að það hafi haft áhrif á mig. Þegar ég var á milli tvítugs og þrítuga lagði ég oft spil og spáði í bolla og hafði líka mikið gaman af að fara sjálf til spákonu. 

Um þrítugt fór ég á námskeið í Reiki og þar varð ég fyrir mjög sterkri andlegri upplifun þar fann ég ilm af gleði, kærleika og ólýsanlegri tærri hamingju sem ég mun aldrei gleyma. Ég vann því miður ekki lengi sem Reikiheilari því  að ég þurfti að ganga í gegnum mikil andleg veikindi sem stóðu yfir í nokkur ár og ég var lengi að ná jafnvægi á ný. Fyrir u.þ.b. 10 árum fór ég aftur að huga að því hlutverki sem mér er ætlað hér og það er að vera ljósberi. Smátt og smátt fann ég þörf til að vinna áfram með sjálfa mig sem persónu og fægja hæfileika mína sem heilari.

Ég ákvað að fara í nám í Heilunarskóla Nýjalands hjá Stefaníu Ólafsdóttur í Hveragerði og kláraði fyrsta námskeiðið hjá henni. En mér fannst vanta að orkan flæddi gegnum mig og var ekki nógu ánægð. Þá bað ég minn æðri mátt um að leiðbeina mér hvað ég ætti að gera til að auka næmni mína og flæði. Viti menn næsta dag fór ég í vinnuna og þar var kona að nafni Alma Hrönn kölluð Hrabbý sem leigði aðstöðu hjá vinnuveitanda mínum, hún sagði mér frá námskeiði í Englareiki. Um leið vissi ég hvað ég átti að gera og stuttu síðar kláraði ég seinni helminginn af náminu. Á þessum tíma þroskaðist ég mikið sem andleg vera og dásamleg orka englanna varð farvegur kærleikans sem er einstakt og frábært.

En hvað er Reiki?

Hver manneskja er með orkustöðvar, í venjulegu Reiki er kennt um 7 orkustöðvar víðsvegar um líkamann. Hve orkustöð stýrir vissum líffærum. Orsökin fyrir því þegar manneskja verður veik líkamlega eða andlega er að truflun verður í viðkomand orkustöði sem þá þarf að hreinsa. Heilari sem er farvegur græðand orku getur hreinsað orkustöðina og þannig bætt líðan og heilsu viðkomandi.

Heilun getur virkað beint á það svæði sem er veikt t.d. ef viðkomandi er með bólgu í ökkla þá er hægt að heila beint á það svæði. Í englareiki lærði ég á fimm orkustöðvar í viðbót sem tengja okkur við hærri tíðni og verur. Sem englareikimeistari miðla ég 100 prósent tæru ljósi og visku, hreinsa orkustöðvar og bæti ýmis mein andleg og líkamleg.

Lærði dáleiðslu

Ég elska að fara á Heimsljós messu bæði sem þyggjandi og gefandi. Þegar ég fór á mína fyrstu messu fór ég á fyrirlestur hjá Söru Pálsdóttur dáleiðara og fór síðan á námskeið hjá henni til að losna við kvíða sem hefur hrjáð mig lengi. Magnað námskeið sem virkaði. Ég var svo heilluð og fann að ég átti að læra meira í dáleiðslu sem ég gerði hjá; Breytt hugsun ehf. Þar fékk ég leiðsögn með að leiða fólk áfram í huganum og hafa áhrif á undirmeðvitundina hjálpa fólki að öðlast betri líðan á annan hátt. 

Undanfarna mánuði hef ég þróast og þroskast og öðlast meiri færni sem heilari, meðan á meðferð stendur get ég miðla um leið. Ég blanda saman þessum fræðum og fæ að miðla upplýsingum til fólks þeim til þroska og bættrar líðan.

Það er hægt að finna meiri upplýsingar á heimasíðu Svövu Halldórsdóttur er:  heilandileidsogn.com.

Ingibjörg Sigfúsdóttir skráði í október 2024.

Ætlun er að segja frá fleiri aðilum sem kynntu nýjungar á Heimsljós messunni og mun það koma síðar. Þeir sem vilja fylgjast með greinum sem settar eru á www.heilsuhringurinn.is er bent á að skrá sig á póstlista síðunnar.



Categories: Greinar og viðtöl, Meðferðir

Tags: , , , ,