Skortur á magnesíum orsakar háan blóðþrýsting 

Hér er þýtt, stytt og endursagt myndbandið: Orsök háþrýstings ,,The Cause Of High blood Pressure” þar sem Radio Host tók viðtal við dr. Peter J. Glidden, ND. sem lýsir algengustu orsök fyrir háum blóðþrýstingi. Slóðin er:  https://www.youtube.com/watch?v=HBSWNQVhb-U 

Algengasta orsök háþrýstings er skortur á magnesíum.  

Það eru tvær tegundir af æðum í mannslíkamanum; slagæðar og bláæðar. Slagæðar flytja blóð frá hjartanu en bláæðar flytja blóð til hjartans. Hver er munurinn? Slagæðar hafa vöðva en bláæðar ekki. Þegar hjartað dælir blóði í slagæðarnar þrýstast þær saman og slakar svo á til að hjálpa hjartanum að dæla blóðinu, 

Þarna gegnir kalk og magnesíum stóru hlutverki.

Þegar vöðvar æðanna þrýstast saman við dælingu blóðsins geta æðarnar ekki slakað á og hleypt blóðinu eðlilega í gegn án þess að hafa nóg magnesíum. Þannig að ef magnesíum vantar myndast þrýstingurinn sem um ræðir. 

Þetta má skýra með dæmi: Ef þú ert með garðslöngu með rennandi vatni kemur vatnið hraðar út ef að þú kreistir slönguna. Vegan þess að þegar rúmmálið minnkar eykst þrýstingurinn. Sama gerist þegar slagæðin þrýstist saman og skortur er á magnesíum þá kemur ekki slakinn í æðina sem þarf til að blóðið renni fyrirstöðulaust í gegn.

Dr. Glidden segir að oftast stafi hár blóðþrýstingur ekki vegna laskaðs blóðrásarkerfis, ekki heldur vegna slæmra gena, eða af því að aldurinn færist yfir. Heldur komi hár blóðþrýstingur vegna þess að líkaminn verði uppiskroppa af magnesíum, þessu efni sem hann nauðsynlega þurfi til að viðhalda jafnvægi blóðþrýstings.     

Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi, stytti og endursagði myndbandið: Orsök háþrýstings ,,The Cause Of High blood Pressure” þar sem Radio Host tók viðtal við dr. Peter J. Glidden, ND. sem lýsir algengustu orsök fyrir háum blóðþrýstingi. Slóðin er:  https://www.youtube.com/watch?v=HBSWNQVhb-U 

Dr. Peter J , ND. er löggiltur náttúrulæknir og hefur yfir 30 ára reynslu í starfi.



Categories: Greinar, Meðferðir

Tags: , ,