Gefur kúrkumín framleitt með Micelle líftækni nýja von fyrir heilabilaða?

Hér birtast þýddir og endursagðir punktar úr myndbandinu ,,Curcumin & Brain Health“ https://www.youtube.com/watch?v=548BX45TBnY eftir dr. Jeremy Thornton. Fyrst grípum við niður í seinni hluta myndbandsins.

Það eru aðeins 5% af túrmerik rótinni virkt kúrkurmín og það er lípíð með lítið frásog í blóðrásina. Eftir gömlu aðferðinni þarf 500 milligrömm af túrmerik til að fá eitt gramm af kúrkumíni til að frásogast í blóðrásina.

Vísindamenn hafa lengi rannsakað eiginleika kúrkumíns en ekki fyrr en nú
fundið leið til að það frásogist í þörmunum. Kúrkúmin getur verið mjög bólguhamlandi en var að nýtast illa vegna lélegs frásogs og lítillar viðveru í líkamanum. Með gömlu aðferðinni voru það bara 10 prósent eða minna af Kúrkumín sem líkaminn nýtti. Kúrkumín er það sem kallað er vatnsfælið og það er vandamál þegar líkaminn, frumurnar og blóðrásin
eru að mestu úr vatni.

Með þessari nýju Nano líftækni eru atómin/ mólikúlin klofin niður í öreindir sem eru hulin með vatnsleysanlegum hjúp. Miccell hjúpurinn er varnsleysanlegur og getur ferðast í gegn um líkamann með vatnsbúskapnum að frumunum. Frumurnar hafa viðtaka fyrir kúrkumím. Micelle hjúpurinn virkar eins og kafbátur hann opnast við frumumóttakann og hleypir kúrkumíni inn í frumuna. Svo skolast Micelle hjúpurinn út.

Við þetta verður undraverð breyting og kúrkumímið verður allt að 277 sinnum aðgengilegra fyrir líkamann. Aðalatriðið er ekki hve mikið kúrkumín þú tekur inn heldur hve mikið frásogast og hve lengi það er í blóðinu, líffærum og vefjum.  Micelle tæknin getur auðveldlega borið kúrkumín inn í blóðrásina og flutt það um þarmana og komið því inn í frumur, líffæri, vefi og heila.

 Þessi mynd sýnir hve kúrkumín unnið með Miccel líftækni frásogast betur og er lengur í blóðinu en var með gömlu aðferðinni.

Nanotækni snýst um mjög lítil korn með lífefni, þau eru minni en 30 nano metrar. Rauð blóðkorn eru 7.000 þúsund nanometrar á breidd. Mannshár þyrfti að sneiða niður 100.000 sinnum til að fá einn nanometer. Það er um það bil stærð kornsins sem við erum að tala um.

Með líftækni Micelle leysanlegra efna er kúrkumínið eitt af örfáum efnum sem hefur verið sýnt fram á að fer yfir blóðheilaþröskuldinn án skaðlegra hjálparefna og eina náttúrulega bólgueyðandi efnið/jurtin sem gerir það. Þannig nær kúrkumín til heilafrumnanna og hefur áhrif á bólgur inn í heilanum.

Hér er miðað við um 10 dropa af kúrkumín framleitt með þessari ótrúlegu nýju Micelle tækni. Það frásogast 277 sinnum betur en áður þekktist. Til samanburðar þyrfti að neyta 8 kíló af túrmerikrót til að jafngilda þessum 10 dropum eða 25 hylkjum af kúrkumíni til að komast nálægt þessu stigi.

   

Nýlegar rannsóknir á músum hafa greint frá því að kúrkumín hamli vitrænni hnignun og bæti taugamótavirkni í músum með Alzheimers.

Myndbandið byrjar á umfjöllun um Alzheimersjúkdóminn og útbreiðslu hans í Bandaríkjunum þar sem 5.8 milljónir þjást af Alzheimers og hann er sjötta algengasta dánarorsökin þar í landi.

10% af þeim sem eru 65 ára eru með Alzheimers,

3 % af 65 til 74 ára,

17% af 75 til 84 ára

32% af 85 ára og eldri.

Líkindareikningur sýnir að hjá 45 ára karlmanni eru 10 % líkur á að fá Alzheimers síðar á ævinni og 19.5 % hjá konu, mismunurinn felst í því að konur verða almennt eldri. Hjá einstaklingi með sykursýki eru 60% meiri líkur að fá Alzheimers seinna á ævinni.

Alzheimerssjúkdómur er mjög sérstakur hrörnunarsjúkómur í taugakerfi, margir bera hann saman við heilabilun og hefur hann einkenni sem slík. En Heilabilun er almennt hugtak og það er margt mismunandi sem getur valdið minnkun í vitsmunalegri virkni. Alzheimer er tegund heilabilunar en ekki öll heilabilun er Alzheimerssjúkdómur.

Megin ástæður Alzheimerssjúkdóms telur dr. Thornton vera fjórar:

sykursýki,

lekir þarmar og lekur heili,

eitrun frá áli,

bólgur

Sykursýki 3 og insúlínviðnám

 Venjulega þegar sykurs er neytt hækkar blóðsykurinn og brisið seytir insúlín sem opnar viðtaka frumna í líffærum, vöðvum og vefjum. Frumurnar nota glúkósann til að búa til orku. Sífellt meiri sykur kallar á sífelt meira insúlín og frumurnar hætta að gefa insúlíninu eins mikinn gaum og þær gerðu áður og verða ekki eins næmar.

Þá þarf meira insúlín til að fá sömu svörun og enn minnkar næmi frumnanna. Blóðsykurinn eykst og kallar hærra eftir meira insúlíni frá briskirtlinum. Svona fer þetta fram og til baka þar til komið er að því að þó það sé mikið insúlín til staðar í blóðrásinni er það ekki lengur fært um að stjórna blóðsykrinum eða koma sykri inn í frumurnar sem þurfa mjög á honum að halda til að búa til orku. Þarna er komið það sem nefnt er insúlínviðnám sem veldur því að vélbúnaður frumnanna verður óvirkur.

Heilinn er stærsti neytandi sykurs af öllum líffærum líkamans. Ef heilafrumur verða ónæmar fyrir insúlíni og fá ekki sykur deyja þær. Það veldur miklum bólgum og frumudauða. Þá er talað um sykursýki af tegund þrjú.

Lekir þarmar

Það getur þótt langsótt að þarmarnir tengist Alzheimerssjúkdómi, stutt útskýring er eftirfarandi: Streita veldur losun á próteini í þörmunum sem heitir ,,Zulin“ það minnkar þéttleika þarmanna og þar sem er mikið af zulin geta myndast glufur. Þá byrja hlutir eins og mótefnavakar, framandi prótein, sýklar, bakteríur, vírusar, eiturefni, fjölsykrur og bólguefni að fara í gegn um þarmahindrunina og lenda í blóðrásinni sem er hinum megin við þarmahindrunina. Það veldur miklum vandamálum í æðakerfinu, eykur bólgur og ertingu.

En það er ekki það eina sem gerist heldur berst þetta upp í aðra hindrun sem heitir blóðheilaþröskuldur og skapar þar bólgu sem veldur myndun ónæmissvörunar sindurefna í heilanum. Það leiðir til taugabólgu eða bólgu í heilanum. Þetta gæti verið undirrót bólgu sem tengist öllum sjúkdómum.

Eitrun frá áli

Ál stuðlar að meingerð Alzheimerssjúkdóms. Við tökum hratt upp ál í gegnum blóðrásina og eitlakerfið og það getur leitt til uppsöfnunar á áli í heilanum.  Ál er í ýmsum hreinlætisvörum, svitalyktareyði, bóluefnum, álpappír og fleiru.

Bólgur

Mynd af heila með Alzheimerssjúkdóm, rauðu svæðin eru upplýst og sýna bólgu af völdum inúlínsviðnáms.

 Í myndbandinu segir dr. Jeremy Thornton: ,,Við höfum séð líf fólks breytast, og heilsu endurheimtast svo ótrúlegur ávinnigur er með þessari tækni. Það má meðal annars þakka því hver kúrkumín vinnur á bólgum.

Loksins er hægt að koma þessu töfrandi efni inn í líkamann á heilandi magni og halda því þar í nokkurn tíma sem gefur ótrúlega möguleika til betri lífsgæða“.

Höfundur myndbansins;  Jeremy Thornton er eigandi ,,Thornton Natural Healthcare Center in United States, Missouri“  hann er læknir og   sérfræðingur í kírópraktík með 25 ára reynslu í lyflækningum, klínískur næringarfræðingur og sérfræðingur í heildrænum lækingum.

Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi og endursagði nokkra punkta úr myndbandinu ,,Curcumin & Brain Health“ eftir dr. Jeremy Thornton með hjálp Vilborgar Hjaltested. Slóðin á myndbandið er: https://www.youtube.com/watch?v=548BX45TBnY – Myndirnar í greininni eru teknar úr myndbandinu.

Hér er viðtal við Ásthildi Helgu Jónsdóttur sem hefur hlotið heilsubót af notkun kúrkumín dropa. Slóðin á greinina er: https://heilsuhringurinn.is/2024/07/04/med-kurkumin-kom-orkan-aftur-og-heilathokan-hvarf/  Ásthildur Helga er meðlimur í hópi sem er með vefsíðu þar sem fólk tjáir reynslu sína af dropunum.  Þetta er slóðin á þá síðu: https://www.facebook.com/groups/361004089263279  Til að komast inn á síðuna þarf leyfi frá meðlimi hópsins.  Asthildur Helga Jonsdottir býður fólki inn í hópinn og er fús til að leiðbeina hvernig best er að panta kúrkumín dropa. Netfang: asthildurhj@gmail.com

Einning er viðtal við Þórdísi Skúladóttur sem hefur notað kúrkumíndropa með miklum árangri gegn Sjögrens- og Hashimotos sjúkdómum:  https://heilsuhringurinn.is/2024/08/05/fra-vanheilsu-til-betri-lidan-a-ketofaedi-og-kurkumin-dropum/

Fyrir 12 árum birti Heilsuhringurinn forvitnilega grein sem heitir: Alzheimerssjúkdómur, sykursýki í heilanum?  eftir Ævar Jóhannesson og fjallar um sykursýki 3. https://heilsuhringurinn.is/2018/10/27/alzheimersjukdomur-sykursyki-i-heilanum/

Frá vanheilsu til betri líðan á ketófæði og kúrkumín dropum

 

 



Flokkar:Greinar, Næring

Flokkar/Tögg, , , ,