Þórdís Skúladóttir var orðin illa farin sökum Sjögrens-og Hashimotos sjúkdóma þegar hún breytti yfir í ketófæði fyrir 7 til 8 árum síðan. Svo þegar hún fór líka að taka inn Kúrkumín dropa fyrir 2 árum síðan varð gjörbreyting á líðan hennar.
Nú fær Þórdís orðið.
Það er erfitt að segja hvor Sjögrens- eða Hashimotos sjúkdómurinn er verri því að þeir séu svipaðir sjálfsofnæmissjúkdómar en samt ólíkir. Ég var með öll verstu einkenni Sjögrens sjúkdóms en það er ekki sjúkdómur í venjulegum skilningi, heldur svokallað heilkenni sem er samsafn sjúklegra einkenna sem geta átt sér fleiri en eina orsök. Hjá mér var mikill augnþurrkur, við skoðun í Táralindinni var ég einungis með 4% raka í augunum.
Ung þjáðist ég af óeðlilegri vöðvabólgu síðan var ég greind með vefjagigt og slitgigt og um 19 ára aldur byrjuðu hryllileg mígreni köst. Svo fór ég að missa máttinn í líkamanum, átti mjög erfitt með að kyngja. Ég var sífellt að reka tærnar í og lá við að detta. Áður fyrr var ég mjög handsterk og fannst skrýtið þegar ég gat ekki lengur opnað dósir eða flöskur með skrúfuðu loki.

Sjúkdómseinkenni Hashimotos- og Sögrens sjúkdómar byrja í meltingunni og enda svo með sjálfsofnæmi. Þeir sem þjást af þessum sjúkdómum verða að taka út allt bólgumyndandi fæði, eins og sykur og sterkju. Ég þoli ekki heldur ávexti, þegar ég borða þá finn þá skrítna lykt og fæ doða og tilfinningu í tunguna.
Ég er mjög viðkvæm fyrir eiturefnum bæði í mat og umhverfi. Ef ég leyfi mér að borða kjúkling, sterkju, unnin mat og maís sem er verstur af öllu þá fæ ég verki, óþol fyrir hávaða og áreiti, heilaþoku, verð pirruð og fæ mikinn kláða. Ég þorna líka upp í augum og munni. Hvorki glúten né mjólkurvörur fara inn fyrir mínar varir nema smjör og rjómi í morgunkaffið mitt.
Ég byrjaði á mjög hreinu ketófæði fyrir 7 til 8 árum síðan. Í því eru ekki ostar eða mjólkurvörur og ekki neinn unninn matur. En mikið af grænmeti og einnig er góð fita. Fyrst á meðan hreinsun líkamans stóð yfir versnaði ég. Það var erfitt á meðan það gekk yfir en ég beit á jaxlinn enda búin að þola mikla verki og vanlíðan í tugi ára. Eftir að það leið hjá minnkuðu verki um 70% og augnþurkurinn lagaðist til muna og það varð mikil breyting.
Hashimoto er algengasta orsök skjaldvakabrests. Ástandið veldur því að hvít blóðkorn og mótefni ráðast ranglega á frumur skjaldkirtils. Sjúkdómurinn veldur því að ég er með vanvirkan skjaldkirtil. Af þeim sökum missti ég mikið af hári, það klofnaði og endarnir brotnuðu.
Svo byrjaði ég að taka inn kúrkumín dropa fyrir 2 árum síðan. Fjórum vikum eftir að ég byrjaði að taka inn dropana fór ég til hárgreiðslukonu þá var hárið farið að vaxa aftur. Hárgreiðslukonan sagðist aldrei hafa séð svona þá stóðu nýir broddar út í loftið. Síðan hefur hárið haldið áfram að vaxa. Nú er ég komin með augabrúnir og þétt augnhár aftur og get sett maskra á augnhárin sem ég gat ekki áður því það voru nánast engin augnhár eftir.
Fyrir ári síðan þegar ég hafði tekið kúrkumín dropana í eitt ár prófaði ég að sleppa skjaldkirtilslyfjunum og mér hefur gengið vel án skjaldkirtilslyfja síðan. Það er alveg deginum ljósara að það er kúrkumín dropunum að þakka. Áður fyrr þegar ég gleymdi að taka skjaldkirtilslyfin varð ég dauð þreytt, pirruð, með heilaþoku og með verki um allan líkamann. Ég hef þjáðst af krónískum kvíða og stressi nánast alla mína ævi og það fór versnandi með hverju árinu. Um fertugt var ég greind með ADHD og læknirinn var hissa að ég hafi getað alið börnin mín upp með sóma.
Nú tek ég inn frá 10 og upp í 20 dropa af kúrkumín í kaffið mitt alla morgna með smjöri, MCT olíu og rjóma. Það hjálpar mér og mér líður betur og þess vegna elska ég kúrkumín dropana.
Hvað er MCT olía?
MCT olía er unnin úr kókosolíu og er með 100% þríglýseríð meðal langar fitusýrukeðjur en kókosolía er aðeins með 15% þríglýseríð meðal langar fitusýrukeðjur. Það einstaka við meðal langar fitusýrukeðjur þríglýseríðs er að það breytist í ketóna ansi hratt sem innihalda ekki gall úr lifur. Svo að MCT olía framleiðir eingöngu orku en myndr ekki fitu og er miklu auðmeltari. Í byrjun er aðeins ráðlagt að taka eina teskeið af henni á dag.
Þórdísi Skúladóttur er fædd á Akranesi 21/11.1961 og er uppalin þar. Ef fleiri upplýsinga er óskað er netfangið hennar: thordis@arnarholt.net
Ingibjörg Sigfúsdóttir færði viðtalið í letur 1. ágúst 2024.