Site icon Heilsuhringurinn

   Ekki hunsa einkenni Hashimoto skjaldkirtilsbólgu

 Hér birtis þýtt, stytt og endursagt myndbandið ,, Do Not Ignore These Hashimoto’s Thyroiditis Symptoms” eftir dr. Steven R. Gundry. https://www.youtube.com/watch?v=tt_roh3gn2E&t=57s

Sjálfsofnæmissjúkdómurinn Hashimoto er skjaldkirtilsbólga, þar sem að ónæmiskerfið ræðst á skjaldkirtilinn. Með tímanum leiðir það til bólgu og skemmda, sem veldur því að skjaldkirtillinn starfar illa og gefst að endingu upp ef ekkert er aðgert. Sjúkdómurinn getur komið fram í bólgu framan á hálsinum og hálsinn getur orðið rauður, þrútinn og jafnvel aumur. Tilfinning við að kyngja getur breyst. Oft áttar fólk sig ekki á þessu fyrr en aðrir hafa orð á útlitsbreytinunni og að eitthvað hljóti að vera að.  Sumir fá hárlosi og hár hættir að mestu að vaxa á fótum og í handarkrikum.  Þetta eru allt merki um Hashimoto.

Sjúkdómnum fylgir  minni orka, stöðug þreyta, breytingar á svefnmynstri. Til dæmis að þurfa að leggja sig síðdegis, sem ekki hefur i þurft áður. Fólk finnur meira fyrir kulda eða hita en venja er. Kannski eru kviðvandamál mikilvægasta merkið um Hashimoto, sem fólk áttar sig ekki á vegna þess að það tengir það ekki. Það getur komið fram í:  viðkvæmum ristli, kviðverkjum, uppþembu, breyttum hægðum, annað hvort niðurgangi eða hægðatregðu.

Dr. Gundry segir nýlega sögu: Samstarfskona hans sem er húðlæknir í Montecito, opnaði nýja stofu, sem hann fór að skoða. Þar var móttökuritari sem spurði hvað hann gerði. Þegar hann sagði að 80% af starfi hans væri að meðhöndla fólk með sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Hashimoto svaraði kona: ,,Ó, Guð minn góður, ég er með Hashimoto, það er svo hræðilegt og veldur mér kviðverkjum og ég næ ekki stjórn á þörmunum. Þó að mér hafi verið sagt að gera hitt og þetta hefur enginn nokkurn tíma minnst á hvað ég eigi að borða.“

Hashimoto-sjúkdómurinn á fyrstu stigum getur í raun valdið ofvirkni skjaldkirtils og síðan þegar skaldkirtillinn eyðilegst verður skjaldvakabrestur. Á sama hátt er ef þú ert taugaóstyrkur, eirðarlaus eða átt í erfiðleikum með að sofa gætirðu fengið Hashimoto-sjúkdóminn á fyrstu stigum og ástæðan líklega verið ofvirkni skjaldkirtils.

Þegar ónæmiskerfið ræðst á skjaldkirtilinn getur hann ekki lengur framleitt skjaldkirtilshormón, T3 og T4, á áhrifaríkan hátt, og það leiðir til skjaldvakabrests.  Samt segir dr. Gundry að fæstir skjaldvakabrestir sem komi í ljós á hans læknastofu séu af völdum Hashimoto-sjúkdómsins. Til dæmis sé joðskortur önnur helsta orsök hægs skjaldkirtils. Í byrjun 20. aldar þjáðust milljónir manna í Bandaríkjunum af skjaldvakabresti vegna lágs joðmagns. Á níunda áratug 19. aldar fluttu margir Bandaríkjamenn frá ströndinni til Miðvestur Ríkjanna, sem oft er kallað Goitre- svæðið (goiter er orð yfir skjaldkirtillsstækkun vegna joðskorts). Fólkið hætti að borða sjávarafurðir, hvort sem það var sjávarfiskur, ostrur, kræklingur eða rækjur. Þar voru engin höf og lítið joð í mataræðinu. Áætlað er að yfir 10 milljónir manna hafi látist í Bandaríkjunum úr skjaldvakabresti í byrjun 20. aldar. Til að laga þetta fyrirskipaði alríkisstjórnin að bæta joði út í salt. Þegar joði var bætt út í saltið samkvæmt lögum, hrapaði skjaldvakabrestur og goiter í Bandaríkjunum.

Dr. Gundry segir: Svo vinsamlegast, vinsamlegast, vinsamlegast notið joðbætt sjávarsalt. Það er ótrúlegt hversu margir sem eru með skjaldvakabrest leysa vandan með því að bæta joðbættu sjávarsalti við mataræði sitt. Það eru til fjölmörg ódýr joð-fæðubótarefni.

Raunverulega orsök Hashimoto.

Að sögn dr. Gundry veldur leki í meltingarvegi Hashimoto“.  Hann segist ekki hafa séð sjálfsofnæmissjúkdóm af öðrum völdum en leka í meltingarvegi. Áður en útbreiddur leki í meltingarvegi eða gegndræpi í þörmum varð vandamál, var sjaldgæft að fá sjúkling með Hashimoto. Nú er áætlað er um 60 milljónir Bandaríkjamanna, sérstaklega konur séu með Hashimoto-sjúkdóm. Allir sjúklingar með sjálfsofnæmissjúkdóma sem hafa leita til dr. Gundry hafa verið rannsakaðir og hjá öllum hefur komið fram leki í meltingarvegi.

Það er að koma betur og betur í ljós að sjálfsofnæmissjúkdómar eru af völdum sameindahermu. Það eru mörg efnasambönd sem leka í gegnum veggi þarmanna. Þau líta mjög svipað út og próteinin í skjaldkirtlinum, liðunum eða í húðinni. Ónæmiskerfið reynir að finna þessi undarlegu prótein og drepa þau, og kerfið örvast við leitina. Skjaldkirtlinn á í striði við prótein sem líkjast mjög því sem leitað er að, en eru ekki alveg eins og reynir að eyða þeim. Það veldur vandamáli. Dr. Gundry bætir við: ,,Sameindahermukenningin um sjálfsofnæmissjúkdóma er að sannast meira og meira. Það hefur komið glöggt fram hjá sjúklingum mínum“.

Og dr. Gundry spyr: ,,Hvað gera hefðbundnir læknar ef þeir athuga skjaldkirtilinn?“ Þeir athuga TSH, sem stendur fyrir skjaldkirtilsörvandi hormón. Þeir athuga einnig T3 gildi og T4 gildi og ef þau líta eðlileg út, þá stoppa þeir þar. En hreinskilnislega sagt, það er ekki nóg.

Hvað athugar dr. Gundry?  Fyrst af öllu geri hann lekaþarmspróf. Hundrað prósent sjúklinga hans með Hashimoto hafa verið með leka þarma. Annað sem hann geri er að athuga T3 og T4 , sem eru raunverulegu virku hormónin sem vinna verkið. Svo athugar hann mótefni gegn skjaldkirtli, sem koma fram ef ónæmiskerfið er að ráðast á skjaldkirtilinn. Tvö algengustu prófin eru TPO prófið, skjaldkirtils peroxíð mótefni og skjaldkirtils glóbúlín prófið. Þetta eru lykilmerki Hashimoto. Margar niðurstöður úr skjaldkirtilsprófum koma eðlileg út þrátt fyrir að enn sé eitthvað að. Þá keyri hann prófið sitt og það finnur raunverulega vandamálið. Leka þarma.

Rót vandans við leka þarma er næringin. Það skýrir hvers vegna ákveðin matvæli valda Hashimoto köstum. Dr. Gundry tekur dæmi um einn sjúkling sem hann kallar hollustusnilling frá Hollywood. Maðurinn var í frábæru formi en byrjaði skyndilega með þreytu og orkuleysi. Þrátt fyrir að vera giftur ungri og kynþokkafullri konu minnkaði kynhvötin. Með rannsókn fann Gundry að maðurinn var með leka þarma. Það kom í ljós að hann var að borða hollan próteinbar og -hristing úr jurtaríkinu á hverjum degi. En þeir innihéldu baunaprótein og nýjastasti hlutinn var Himalaya-spírað bókhveiti. Hvoru tveggja eru gríðarlega lektínrík matvæli. Hann fjarlægi þau úr mataræðinu og innan mánaðar leið honum eðlilega aftur.

En matur er ekki eina kveikjan að lekum þörmum. Veirur geta einnig valdið leka. Margar veirur eru alræmdar fyrir að skemma slímhúð þarmanna, sem leiðir til lekra þarma og sjálfsofnæmiskasta. Dr. Gundry nefnir sjúkling, sem fékk COVID nýlega tvisvar sinnum. Hjá honum jókst mótefni gegn skjaldkirtilsstarfsemi og aftur fóru þarmarnir að leka. COVID skaðar meltingarveginn. Um 25 til 30% fólks með COVID greindi frá einkennu í meltingarfærum en ekki í öndunarfærum.

Skilaboð dr. Gundry eru: ,,Ef þú ert að glíma við skjaldkirtilsvandamál, skoðaðu ekki aðeins skjaldkirtilinn, skoðaðu meltingarveginn. Gakktu úr skugga um að læknirinn sé að framkvæma réttar rannsóknir og gættu þess að nota salt með joði“.

Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi, stytti og endursagði myndbandið ,,Do Not Ignore These Hashimoto’s Thyroiditis Symptoms” eftir dr. Steven R. Gundry: https://www.youtube.com/watch?v=tt_roh3gn2E&t=57s

Höfundur myndbandsins: Dr. Steven R. Gundry er fæddur 11. júlí 1950, hann er fyrrverandi hjarta- og brjóstholsskurðlæknir og prófessor við ,,Loma Linda University School of Medicine”. Dr. Gundry söðlaði um á miðjum aldri og stofnaði einkastofuna: ,,International Heart & Lung Institute í Palm Springs, Kaliforníu”. Hann rekur tilraunastofu sem meðal annars rannsakar áhrif af lektín lausu mataræði og hefur fundið út að lektín, tegund plöntupróteina sem finnast í fjölmörgum matvælum, valdi bólgu sem leiði til margra nútímasjúkdóma og hann ráðleggur að forðast mat sem inniheldur lektín. Hér á við íslenski málshátturinn: ,, Enginn er spámaður í sínu heimalandi” því að ýmsir hafa mótmælt kenningum Gundry um lektín. Í framhaldi af þessari grein er ætlunin ef tími vinst til að gera lektíni skil hér á síðunni.  Dr. Gundry hefur skrifað margar bækur um heilsutengd efni og sjúkdóma .

Prodcast dr. Gundry: https://www.youtube.com/c/DrGundry  fer í loftið tvisvar í viku.

Áður birtar greinar um meltinguna eftir dr. Gundry: 

Hvað eru lektín og hvaða áhrif hafa þau á meltinguna?

https://heilsuhringurinn.is/2025/06/28/hvad-eru-lektin-og-hvada-ahrif-hafa-thau-a-meltinguna/

Hvernig á að minnka skaðsemi lektína í matnum ? ( framhald )

https://heilsuhringurinn.is/2025/07/10/hvernig-a-ad-minnka-skadsemi-lektina-i-matnum-framhald-af-fyrri-umfjollun/

Bútýrat bakteríur er nauðsynlegar fyrir góða ristilheilsu

https://heilsuhringurinn.is/2025/05/11/butyrat-bakteriur-er-naudsynlegar-fyrir-goda-ristilheilsu/

Hægðatregða – fæðan er lykillinn að heilbrigðri meltingu

https://heilsuhringurinn.is/2025/06/21/haegdatregda-faedan-er-lykillinn-ad-heilbrigdri-meltingu/

Viðtal við Þórdísi Skúladóttur um Hashimoto- og Sjögrenssjúkdóma.

Frá vanheilsu til betri líðan á ketófæði og kúrkumín dropum

Exit mobile version