Saga Margrétar Sigurðardóttur grasalæknis
Ég bjó í blokkaríbúð og fór allt í einu að veikjast smátt og smátt, var mikið heimavið að læra á þeim tíma. Ég var eina sem veiktist illa í fjölskyldunni og einnig sú sem var mest heima. Ég borðaði hollan mat og lífstíllinn hafði ekkert breyst en orkan fór að verða lítil sem engin.
Ég fór líka að fá oft flensueinkenni en var ekki nógu veik til að vera almennilega veik en alltaf slöpp. Einnig var ég oft með hálssærindi og versnandi húðútbrot.
Ég fór því til læknis og sagðist vera alltaf þreytt og orkulaus og ólík sjálfri mér, bað hann um að láta mæla járn, B-vitamín og skjaldkirtilshormón. Hann gerði það en niðurstöður sýndu ekkert óeðlilegt. Þegar það lá ljóst fyrir sagði hann mér að þetta væri allt í höfðinu á mér. Ég gleymi þessu aldrei og varð svo hissa á viðmótinu. Þetta var líklega árið 2010 og þekkingin á myglu og myglueinkennum lítil.
Ég var því engu nær um þessi óútskýranlegu veikindi. Stuttu síðar bættist við rafmagnsóþol, ég gat til dæmis allt í einu ekki með nokkru móti sofið í herberginu mínu lengur, lá andvaka og tókst ekki að sofna, daginn eftir sá ég að það var kominn gerfihnattadiskur á svalirnar fyrir ofan herbergið sem ég tengdi við svefnleysið.
Prófaði að sofa í öðru herbergi og það reyndist í lagi. Svo prófaði ég þetta aftur að fara í gamla herbergið en sama sagan endurtók sig varðandi svefnleysið. Ég gat líka ekki verið lengur í fartövunni minni en 5 mínútur í senn því ég fékk svo miklar höfuðkvalir.
Fékk mikil einkenni í sumum verslunum líka og útfrá sumum ljósum sem dæmi. Ég ákvað því að láta mæla rafsegulmengun heima með mismunandi hætti og gerði einhverjar breytingar varðandi það á heimilinu. Það varð því bærilegra eftir það. Á þessum tímapunkti bættist einnig við veikindin, fæðuóþol, ilmefnaóþol, óþol fyrir kemískum efnum og sterkri lykt. Heitir umhverfisóþol í dag.
Svo árið 2013 fluttum við fjölskyldan út úr íbúðinni og í leiguhúsnæði. Fórum að taka gömlu íbúðina í gegn fyrir nýja leigjendur en fundum svartmyglu í veggjum í sólstofunni, út um allt. Þarna kom loksins skýringin á veikindunum mínum. Við gerðum við þetta fyrir nýja leigjendur en við tók aftur mygla í leiguhúsnæðinu sem við vorum flutt í .
Mig fór að gruna að þar reyndist líka vera mygla þar sem heilsan lagaðist þvi ekki neitt eftir flutninga og lét því mæla myglu þar, sem staðfesti grun minn. Því næst fluttum við aftur í annað húsnæði og þá lét ég mæla strax sem reyndist vera í lagi.
Bataferlið hófst á endanum en allt of hægt, sem kom mér mjög á óvart. Ég hreinsaði mig með jurtum og bætti mataræðið enn frekar. Lagaðist þónokkuð en svo kom upp mygla í 3.skiptið á vinnustað og ég þekkti einkennin sem voru stöðun hálssærindi og útbrot í húð. Eftir alla þessa reynslu hafði ég vit á því að koma mér þaðan í burt og þá hófst batinn fyrir alvöru.
Fann nýtt mataræði og prógram sem virkaði á ótrúlega hratt. Allt í einu 3 mánuðum síðar var orkan orðin eins og áður og gat loksins farið að vinna meira. Batinn kom ótrúlega hratt í þetta sinn með réttri meðferð og uppbyggingu. Rafsegulsóþolið er horfið, þoli umhverfið líka vel í dag. Bún að ná mér að fullu eftir þetta og lærði mikið frá þessari reynslu allri og hvernig maður nær bata aftur.
Höfundur: Margrétar Sigurðardóttur grasalæknir.
