Site icon Heilsuhringurinn

Propolis gegn eituáhrifum áls

Propolis er skilvirk sótthreinsandi, örverueyðandi afurð býflugna sem vísindamenn frá Jiwaji háskólanum í Gwalior á Indland hafa sýnt fram á að getur varið fólk gegn eituráhrifum áls.

Ál er alls staðar og það hefur eituráhrif á líkamann. Álver rísa, fólk drekkur úr áldósum, matur er soðinn í álpottum, geymdur í álskálum, og álpappír er vafið um mat. Fólk fær sprautað í sig bóluefni sem sumt inniheldur ál, aðrir taka sýrubindandi lyf sem innihalda ál t.d. aspirín. Jafnvel hveiti og lyktareyðir geta innihaldið ál. Einnig hefur ál fundist í mörgum matvælum

Líkaminn þarfnast ekki alls þessa áls og þegar það kemst í líkamann getur það safnast fyrir í: lifur, lungum, nýrum, skjaldkirtli og heila. Það sest að í líffærum og keppir við mikilvæg steinefni eins og kalsíum. Ál getur haft áhrif á beinmyndun og beinagrind með því að eyða kalsíum. Margt bendir til þess að ál herji á miðtaugakerfið og geti leitt til andlegrar skerðingar eins og Alzheimers-sjúkdóms.

Vísindamennirnir frá Jiwaji háskóla gerðu tilraun með propolis gegn eituráhrifum áls á lifur, nýru og heilafrumur. Borin vor saman verndandi áhrif klóbindiefnisins N- (2-hydroxyethyl ethylene diamine triacetic acid) (HEDTA) og það notað með og án propolis til að bera saman mismuninn.

Eituráhrif áls hafa áhrif á efnaskiptin og auka þvagsýru

Í tilrauninni, var rottum gefið 32,5 mg / kg af álnítrat. Eituráhrifin komu fram í frumum. Þvagsýra, kólesteról og þvagefni jukust og fundust í sermi. Hvað er sermi? Jafnvægi þvagefna er mikilvægt fyrir efnaskiptin og þau gegna hlutverki í endurupptöku vatns og að jónir fráskiljist út með þvagi. Mikil þvagsýra er undanfari gigtar; þvagsýra eykst fyrst og fremst vegna efnaskipta og niðurbrots púrín kirni. (Púrín  er niturbasi sem byggður er úr einum sex liða hring og einum fimm liða hring. Heiti á ýmsum afleiðum þessa basa. einkum þeim niturbösum sem koma fyrir í kjarnasýrum. –  Kirni,   heiti ýmissa estera af núkleósíðum og fosfórsíðu, byggingareiningar í kjarnasýrum).

Propolis prófað

Tilraunin sýndi að HEDTA hjálpaði til við að endurheimta frumur og varðveita vefjafræðilega lögun. Propolis var jafnvel virkara og dró úr oxun og streitu .

Þegar bæði HEDTA og propolis voru gefin komu róttækar úrbætur í ljós, áhrifin voru mest á: lifur, nýru og heila. Eitt af mikilvægustu breytingunum var á ACHE (acetylcholinesterase) í virkni framheila, miðheila og afturheila. Eituráhrif álsins minnkaði virkni áls á öllum þremur sviðum heilans og Propolis hjálpaði til að endurvekja heilann og endurheimta vefi taugakerfisins. Þessi rannsókn varpar ljósi á mikilvægi þess að býflugur eru óþreytandi í framleiðslu á propolis úr náttúrunni.

Hægt er að nota propolis til að vinna gegn tjóni á lifandi frumum af völdum áls. Propolis verndar nýru, lifur og heila frá eituráhrifum þess. Ef þvagsýra, þvagefni og kólesteról í blóði er hátt af völdum eituráhrifa áls gæti propolis verið náttúrlegt lyf fyrir þá sem þjást af of háu kólesteróli og þvagsýrugigt.

Þetta er þýddur endursagður úrdráttur úr greininni: Scientists use honey bees’ propolis to treat aluminum toxicity eftir L.J. Devon, blsðamann. Greinina er að finna á frummálinu í fullri lengd á slóðinni: http://www.naturalnews.com/043572_propolis_aluminum_toxicity_honey_bees.html#ixzz2qnJFhKA6

I.S. og E.H.   árið 2015.

Exit mobile version