Site icon Heilsuhringurinn

D-vítamín og sól eru næst því að vera töfralyf  – Partur 1

Segir brasilíski læknirinn Cicero G. Coimbra sem náð hefur ótrúlegum árangri við að lækna sjálfsónæmissjúkdóma með stórum skömmtum af D-vítamíni. Heilsuhringnum barst ítarlegar myndband með viðtali við dr. Cicero G. Coimbra sem var tekið 10. apríl 2025 af Jen Aliano forstöðukonu GrassrootsHealth. Myndbandið nefnist ,,Vitamin D Therapy Explained by Dr. Cicero Coimbra | Benefits, Uses & Protocols” slóðin er: https://youtu.be/Zo0iSgsEbBQ?si=hTrEzEHbTdDY_z8J

En Heilsuhringurinn birti grein um dr. Coimbra fyrir 4 árum í janúar 2021 sem má finna hér: https://heilsuhringurinn.is/2021/01/16/dr-coimbra-hefur-nad-storkostlegum-arangri-med-ofurstorum-skommtum-af-d3-vitamini/

 Í byrjun er farið yfir nám dr. Coimbra og upphaf D-vítamín lækninga hans. Vegna þess hve myndbandið er langt verður því skipt niður í kafla og þeir birtir með viku millibili. Efnið er ekki bein þýðing heldur er viðtalið endursagt og stytt það sem hægt er.

Dr. Cicero G. Coimbra lauk læknisprófi frá alríkisháskólanum í Rio Grande Doul árið 1979. Hann er sérfræðingur í lyflækningum og taugalækningum og hlaut námsstyrk í taugalækningum barna við Jackson Memorial sjúkrahús háskólans í Miami, en lauk þjálfun við háskólann í London. Hann var dósent í taugafræði- og taugaskurðlækningadeild og er stofnandi rannsókna og meðferða á sjálfsónæmi í Brasilíu. Klínísk vinna hans beinist að tauga- og sjálfsóæmissjúkdómum. Hann leitast við að dýpka og deila þekkingu sinni um orsakir aukningar á algengi einhverfurófsröskunar um allan heim og aðra taugaþroskasjúkdóma.

Hann er upphafsmaður Coimbra meðferðanna  (Protocols) sem snúast um að nota stóra skammta af D-vítamíni til að meðhöndla sjálfsónæmissjúkdóma. Nú hafa yfir 200 læknar í 13 löndum verið þjálfaðir af dr. Coimbra í notkun þessarar árangursríku meðferðar. Meðferðin þróaðist út frá niðurstöðum erfðamengis verkefnis fyrir mannkynið. Niðurstöðurnar leiddu til þess að borin voru kennsl á fjölbreytileika sem hefur áhrif á genin og eru nauðsynleg ónæmisstýrandi áhrifum D-vítamíns. Þegar umbrotsefni sjúklinga með sjálfsónæmi var aðlagað stórum skammti af D-vítamín. Reyndust þessir stóru skammtar vinna gegn viðnáminu sem stafar af þessu ónæmi hjá fjölmörgum sjúklingum.

Jen Aliano spurði: dr. Coimbra hvernig hann sem taugalæknir hafi fyrst fengið áhuga á D-vítamín frá sólinni.

Hann sagðist fyrst hafa hitt sjúkling með Parkinsonsveiki árið 2000 sá maður hafi verið með nokkra bletti í framheila. Coimbra hafði áhuga á meðferðum sem gætu komið í veg fyrir taugafrumuhrörnun. Á þeim tíma hafði hann lesið skýrslur um örvandi áhrif D-vítamíns til að hjálpa sjúklingum taugafræðilega. Hann ávísaði 10.000 ae. af D-vítamíni í formi kólíkalsíferól til að gá hvort Parkinsons einkennunum yrði betur stjórnað. Áður var komin staðfesting á því að slíkur skammtur af D-vítamíni hefði enginkaðleg áhrif. Þegar sjúklingurinn kom aftur sex mánuðum síðar var taugaástand hans um það bil það sama en skjaldblettirnir í heilanum nánast alveg horfnir. Dr. Coimbra leitaði þá í læknaritum og fann um 300 vísindagreinar sem fjölluðu um mikilvægi D-vítamíns fyrir ónæmiskerfið. Í dag eru til meira en hálf milljón rannsókna um það efni. (Parkinsonsveiki er ekki sjálfónæmissjúkdómur, sjá meira um það síðar).

Þetta var upphafið

Þegar dr. Coimbra byrjaði að ávísa 10.000 a.e. af D- vítamíni til fólks með sjálfsónæmissjúkdóma sem daglegan skammt, ekki aðeins til MS sjúklinga en þó aðallega fyrir þá, undraðist hann árangurinn. Um það leyti fann hann rannsókn frá árinu 1986 sem sýndi færri köst hjá MS-sjúklingum sem tóku inn 5.000 eða 10.000 a.e. af D- vítamíni í formi lýsis.

D-vítamín er í meginatriðum búið til í húðinni við UVB sólargeisla þegar sólin er nógu hátt á lofti. D-vítamín er í raun undanfari stera eða hormóns og getur breyst í virk hormón í nokkrum frumum líkamans, ekki aðeins í nýrnafrumum eins og flestir halda, t.d. treysta ónæmisfrumur á D-vítamín.

 

Ef skuggi þinn er lengri en hæð þín myndast ekki D-vítamín í húðinni.

Einstaklingar með dökka húð þurfa um 5 til 10 sinnum lengra sólarljós til að framleiða D-vítamín miðað við einstaklinga með ljósa húð. Einstaklingar með dökka húð sem búa á norðlægum breiddargráðum eru líklegir til að skorta D-vítamín og þeir eru næmari fyrir margs konar óskyldum sjúkdómum eins og berklum og háþrýstingi.

Eftir að sólarvarnir voru settar á markað hófst mikill áróður til að fá fólk til að forðast veru í sólarljósi. Afleiðingar notkunar sólarvarna eru til dæmis þær að: Ef notaður er verndar stuðull átta af sólarvörn hindrar það um 95% af framleiðslu D-vítamíns, ef notaður er stuðull 15 þá hindrar það um það bil 99% af samfelldri framleiðslu D-vítamíns. Auk þess eru aðrar afleiðingar sólarvarna að þær geta innihaldið álhýdroxíð húðaðar títantvíoxíð nanop agnir og þessar nanop agnir geta farið í gegnum húðina. Ál er mjög eitraður málmur.

D-vítamín er í rauninni ekki vítamín það er sterahormón sem að breytist í hormón í nokkrum frumum líkamans og það er næstum því þörf á D-vítamíni í starfsemi allra frumna líkamans. Lágt D-vítamín gildi er undirrót margra sjúkdóma.

Um sögu sólarljóss og D-vítamíns í meðferð ónæmiskerfisins eru til meira en hálf milljón rannsókna finnanlegar á ,,Google Scholar”: https://libraries.catholic.edu › research-help › how-do-i.  Og á vef Kaþólska háskólans í Ameríku (The Catholic University of America):  https://libraries.catholic.edu › research-help › how-do-i:

Sem dæmi um hve mikilvægt D-vítamín er fyrir ónæmisfrumurnar eru til um það meira en hálfa milljón ritrýndra rannsóknargreina aðgengilegar á Google.

Ónæmisfruma sem smitast af sjúkdómsvaldandi bakteríum og þarf að eyða þeim getur sent skilaboð til Alfa hýdroxýlasa ensíms kjarna ónæmisfrumna sem verða að 25 hydroxy og breyta 25 hýdroxýlið í 125 hýdroxýlið sem er virka form D-vítamíns. Þetta virka form D-vítamíns örvar D-vítamín viðtakann sem framleiðir katalýlin. Katalýlin eru efnasambönd sem eyðileggja nánast hvers kyns örverur sem hafa ráðist inn í líkamann.

Ef við höfum ekki nóg D-vítamín í líkamanum halda bakteríur lífi innan ónæmisfrumnanna.

Varðandi D-vítamíni og smitsjúkdóma voru árið 2021 næstum 300.000 ritrýndar greinar um virkni D-vítamíns. Nú árið 2025 hafa þegar verið birtar um 400 rannsóknir varðandi smitsjúkdóma sem sýna hve D-vítamín er mikilvægt gegn smitsjúkdómum. Dr. Coimbra bendir á lágt D-vítamín gerir örverum kleift að síast í gegn um blóðheilaþröskuldinn.

Auguste Roller var svissneskur læknir fæddur 1874 sem dó árið 1954. Hann læknaði berkla með sólböðum. Roller meðhöndlaði berkla á fyrri hluta tíunda áratugs síðustu aldar. Á þeim tíma var engin árangur í lækningum berkla og ekki búið að finna upp sýklalyf til að berjast gegn þessum mjög smitandi langvarandi sjúkdómi.

Auguste Roller byggði upp 36 íbúðir með stórum svölum í  svissnesku Ölpunum í 2.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Byggingar hans voru kallaðar heilsuhæli.  Hann meðhöndla berklasjúklinga sína með sólarljósi. Ástæðan þess að hann þurfti að vera 2.000 metrar yfir sjávarmáli var vegna þess að hann vildi vera fyrir ofan skýin svo að hann hefði sólarljós allt árið. Meðferðin fólst í daglegum sólböðum. Í nóvember árið 1924 var minnst á þetta í þýsku skáldsögunni: Töfrafjöllin eftir Thomas Man. 

Þessar myndir sýna dæmi um merkilegan árangur Auguste Roller. Á vinstri myndinni er fjögurra ára sjúklingur með berkla og beinhimnubólgu, sem hafa áhrif á báða fætur, hægri handlegg, vinstra lunga og kviðinn. Á barninu eru sár og  það hefur misst mikið af líkamsþyngd. Vinstri öxlin bendir til þess að það hafi líka fengið beinkröm. Á hægri myndinni er sami sjúklingur ári síðar og má sjá hve ástandið hefur breyst.

Það er mikilvægt að segja það að börn með beinkröm dóu oft vegna berkla og á einhverjum tímapunkti héldu sumir læknar að berklar og beinkröm væru með sama uppruna.

Þetta var á þeim tíma sem mikilvægi D-vítamíns fyrir ónæmiskerfið var óþekkt.

Árangur dr. Auguste Roller og meðferða hans á berklum með sólarljósi og hreinu fjallalofti má sjá af stofnun heilsuhæla á ýmsum stöðum um allan heim, þar á meðal á fjallasvæði í Brasilíu. Þó að á einhverjum tímapunkti hafi verið sett gler í glugga. En gler hindrar UVB geisla sem eru nauðsynlegir fyrir D-vítamín myndun í húðinni. Heilsuhælum í Sviss fyrir berklasjúklinga var lokað og þeim breytt í hótel á þeim tíma sem fyrsta sýklalyfið gegn berklum var kynnt.

Lítið D-vítamín gerir örverum kleift að halda lífi inni í óæmisfrumum og það leiðir til þess sem kallað er Tjóuhestferli. Ef D-vítamín er lágt ná ónæmisfrumurnar ekki að eyðileggja örverur og þegar ónæmisfrumurnar fara í gegnum blóðheilaþröskuldinn bera þær með sér veirur. Þannig getur heilinn smitast af t.d. HIV og fleiri veirum eins og lömunarveiki. Þetta er kallað Tjóuhesturinn vegna þess að veiran fer inn í heilann innan ónæmisfrumunnar og nær þannig að komast framhjá blóðheilaþröskuldinum.

Í september 2018 kallaði Alþjóðaheilbrigðismálaráið til brýnna aðgerða til að binda enda á berklafaraldurinn. Fyrir COVID-faraldurinn voru berklar banvænasti smitsjúkdómurinn á alþjóða vísu og urðu 2000 manns að bana árlega.  

Partur 2 framhald af þessari gein verður birt eftir viku.

Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi og endursagði fyrsta part myndbandsins ,,Vitamin D Therapy Explained by Dr. Cicero Coimbra | Benefits, Uses & Protocols” slóðin er: https://youtu.be/Zo0iSgsEbBQ?si=hTrEzEHbTdDY_z8J

Exit mobile version