Site icon Heilsuhringurinn

Hvernig lýsir sér og hverju veldur lifrarfitusjúkdómur ?

Lifrarfitusjúkdómur er vísindalega þekktur sem fituhrörnun í lifur og á sér stað þegar lifrin verður geymslustaður fyrir fitu. Ef lifrin bólgnar setur það af stað keðjuverkun vandamála í líkamanum eins og myndun: magafitu, hás blóðþrýstings, sykursýki, nýrnasjúkdóma og bólgna gallblöðru. Það er eins og dómínóáhrif í líkamanum og örvefur byrja að myndast og síðan hefst bandvefsmyndun. Þessar örvefur eru eins og vegatálmi fyrir lifrar frumurnar og koma í veg fyrir að þær geti sinnt mikilvægu starfi sínu við að hreinsa blóðið. Eiturefni byrja að hrannast upp inni í vefjum og valda heilsutjóni. Tuttugu og fimm prósent fullorðinna um allan heim glíma við fitulifur.

Orsökin er oft rangt val á næringu t.d. ofneysla á omega-6 fitusýru sem mikið er af í sumum jurtaolíum og margri annarri næringu. Smjörlíki, maís-, soja-, kanola-jurtaolíur eru ríkar af omega-6. Þessar olíur valda bólgum í lifrarfrumum sem truflar eðlilega meltingu á fitu. Of mikill sykur getur einnig stuðlað að fitu í lifrinni. Sykur breytist í fitusýrur sem virkar eins og umferðarteppa í lifrinni og ekki má gleyma alkóhóli. Nokkrir drykkir af alkóhóli geta valdið ákveðnum erfðafræðilegum sveiflum sem valda því að lifrin geymir fituna í stað þess að brenna henni. Annar leyndur þáttur er mikið af frúktósa sem finnst í meira en 80% pakkaðra matvæla eins og t.d.: gosdrykkjum, sósum og skyndibitum. Slíkt breytist fljótt í fitu í lifrinni.

Í tilfellum geta ákveðin lyf og jafnvel vírusar komið lifrinni úr jafnvægi og veldur því að fita safnast fyrir. Það er ekki rétt að lifrar fitusjúkdómar finnist við venjulega lifrarensím blóðprufu. Það getur leynt sér í mörg ár og skemmt lifrina hljóðlaust þar til ástandið verður óviðunandi.
Svo hægt sé að þekkja og takast á við lifrarfitusjúkdóm kemur nú dýrmæt innsýn í níu liðum um helstu merki þess að í lifrinni gæti verið meiri fita en ætti að vera.

1. Verkur í hægri öxl, hálsi, kjálka eða ofarlega í herðablaði? Það gæti verið merki um lifrarfitu vandamál. Lifrin gegnir lykilhlutverki í meltingu með því að framleiða gall, sem hjálpar til við að brjóta niður fitu úr matnum hvort sem það er safaríkt kjöt, olíur eða önnur næring. Þegar þrenging verður í lifrinni getur gallið þykknað og festst, sem leiðir til bólgu bæði í lifur og gallblöðru. Það setur þrýsting á ,,phrenic“ taugina sem liggur upp hægri hliðina. Afleiðingin verkur í baki og hálsi.

2. Fita hefur tilhneigingu til að safnast saman í lifur og þegar plássið klárast byrjar það að birtast sem fita í kringum magann. Fita í kringum líffærin er þekkt sem innyflafita og truflar vinslu líffæranna. Það getur valdið blóðþrýstingi og jafnvel hjartavandamáli. Þessi innyflafita getur verið til staðar án þess að vitað sé af henni.

 

3. Verkur hægra megin við rifbeinin gæti verið vegna þess sem kallast gallleðja er í lifur eða gallblöðru. Gallleðja er blanda af kólesteróli sem myndast þegar of mikil fita er í lifrinni og gallblaðran er í ólagi. Það gerir gallið þykkara en það ætti að vera. Svo veldur þessi leðja sem ertir eða þrýstir á brjóskið í rifbeinunum sársauka. Sérstaklega ef setið er lengi við skrifborð getur þetta valdið sjúkdómi, sem kallast rifbeinsbrjóskbólga.

4. Þegar við eldumst getur verið að lifrin virki ekki eins vel og áður, en það getur haft áhrif á líkamann á ýmsan hátt. Þá getur lifrin átt í erfiðleikum með að stjórna auka hormónum eins og estrógeni. Of mikið estrógen getur gert æðarnar veikari sem leiðir til þess að í húðinni myndast litlar æðar sem kallaðar eru kóngulóaræðar. Það má þekkja þær á rauðum punkti í miðjunni með sléttum línum sem dreifast út. Ef slíkt sést á húðinni gæti það verið merki um að lifrin þurfi athygli.

5. Fyrir herrana: Þeir sem fást við fitulifur þurfa að vita að estrógen sem hrannast upp í líkamanum getur leitt til aukins brjóstvefs, svipað og konur hafa. Það byrjar oft sem fituvefsklumpur undir geirvörtunni, þá gæti geirvartan verið aum eða viðkvæm við snertingu. Þannig að ef vart verður við þessar breytingar gæti það verið merki um að þurfi að huga að lifrinni.

6. Bólginn hægri fótur og fótleggur meira en sá vinstri gæti bent til að lifrin væri að senda skilaboð. Þegar fingri er þrýstir í bólgna hlutann gæti fingurinn skilið eftir smá dæld (kallað holubjúgur) vegna þess að það er auka vökvi þar. Þetta gerist þegar lélegt blóðstreymi er frá lifrinni og veldur bólgu.

7. Kláði í höndum eða fótum gæti tengst lifrinni. Þegar lifrin fitnar getur hún fyllst af galli og þetta gall getur byrjað að leka út og safnast undir húðina. Það veldur því að histamín safnast fyrir í blóðinu sem veldur kláða í iljum og lófum.

8. Lifrin getur haft sitt að segja varðandi hægan skjaldkirtil. Lifrin er bak við hormón sem kallast T4, sem 80% breytist í T3. En ef lifrin er með aukafitu eða skorpulifur getur það hægt á þessu umbreytingarferli. Þegar það gerist ruglar það skjaldkirtilinn og hvernig líkaminn nýtir orku.

9. Ef þú ert alltaf þreyttur gæti ástæðan verið lifrinni að kenna. Þegar lifrin er með of mikla fitu og losar ekki nóg af galli ruglar hún upptöku mikilvægra næringarefna eins og: A-, E-, D- og K vítamíns og fleiri efna. Það veldur færri andoxunarefnum í líkamanum, sem getur aukið vanlíðan og þreyttu og jafnvel sljóleika.

Til að snúa við sjúkdómi af völdum lfituifrar er lífsstílsbreyting árangursrík: Ekki neyta óhollra jurtaolía. Í staðin frekar neyta: kókosolíu, extra virgin olíu og kaldpressaðar avókadó olíu. Taka meltingarensím fyrir máltíðir til að þynna gall og bæta niðurbrot fitu. Draga úr sykruðum/sterkjuríkum mat og velja bólgueyðandi valkosti eins og: villtan fisk, kjöt af grasfóðruðum dýrum og brennisteinsríkt grænmeti. Taka inn mjólkurþistil til að styðja við lifrar-afeitrun. Gott er að fasta með hléum til að gefa lifrinni tíma til að leysa upp núverandi fitu. Drekka sítrónusafa í vatni á fastandi maga á morgnana til að styðja við lifrarhreinsun.

Ef það sem komið hefur fram í þessari samantekt líkist því sem þú hefur tekist á við er ástæða að spjalla við lækni. Þeir geta hjálpað til við að finna út hvað er að gerast í lifrinni og finna leiðir til úrbóta. Til er ómskoðun og einnig er til próf sem með hljóðbylgjum geta leitað að fituútfellingum í lifrinni.

Sem betur fer getur lifrin gróið og endurnýjast.

Ingibjörg Sigfúsdóttir þýddi, stytti og endursagði myndandið: ,,9 SIGNS Warning FATTY Liver Issues“ sem má finna hér: https://www.youtube.com/watch?v=7zR816vVlHw af heimasíðunni: ,,HealthHarmony Life“. Janúar 2024.

Myndin sem fylgir er tekin af netinu 

Exit mobile version