Hér eru nokkrir punktar þýddir og endursagðir úr myndbandinu: ,,The Unique Benefits of Using Vitamin D and K2 Combined“ eða Ávinningurinn af því að nota D3 vítamín og K2 vítamín saman. Höfundur myndbandsins Dr. Eric Berg leiðir fólk í sannleikann um það. Slóðin á myndbandið er: https://www.youtube.com/watch?v=uBqNYt6oGCc
Dr. Eric Berg byrjar á að tala um þversögn í umræðunni um kalsíum (kalk) og segir það vera þversögn þegar tvennt sem hljómar rökrétt stangast á.
Fyrst nefnir hann kalsíum þversögnina, sem tengist konum með beinamissi eftir tíðahvörf, en á sama tíma eru þær með æðakölkun. Það hljómar órökrétt, hvernig getur það verið? Hvernig er hægt að vera með kalsíumskort en á sama tíma hlaða umfram kalsíum í slagæðarnar? Það er bara ekki eðlilegt.
Dr. Berg telur flest fólk vita að ef það hafi nóg D3 vítamín hjálpi það margfalt við upptöku kalks í þörmunum. En hvert fer það kalk? Fer það í blóðið og er hættulegt? Byrjar þá að myndast það sem kallast blóðkalsíumhækkun? Rannsóknir hafa verið mjög misvísandi.
K2 vítamín er ekki sama og K1 vítamín sem snýst allt um storknun blóðsins. Ef skortur er á K1 vítamíni fær fólk oft mar. K2 vítamín er öðruvísi það tekur kalkið í blóðinu og flytur það inn í beinin og tennurnar.
K2 vítamín er kalsíum-flutningatæki og það nýtur hjálpar próteinsins ,,coloso calcian“ til að draga kalsíum inn í beinin og bindur það í beinunum, það styrkir beinin. K2 vítamín virkjar líka prótein sem heitir ,,Matrix GLA“ . það bindur ekki kalkið í beinunum heldur fjarlægir kalk úr slagæðunum og öðrum mjúkvef.
Matrix GLA prótein er sterkasti kalkhemillinn og heldur kalsíum frá slagæðum, liðum, augum, nýrum, lungum, húð og brjóstvef.
Ef vöntun er á K2 vítamíni gæti hugsanlega byrjað að þróast sjúkleg kölkun (pathologic L calcification) sem er slæm vegna þess að það eru ákveðnir staðir í líkamanum þar sem kalsíum er ekki æskilegt.
Við þurfum D3 vítamín og K2 vítamín saman til að stjórna kalsíum og mörgum öðrum aðgerðum líkamans. K2 vítamín er afar mikilvægt til að verjast hjartaáföllum því að með K2 vítamíni er hægt að verja slagæðar fyrir uppsöfnun á kalsíum. Ef kona sem er nýbyrjuð með tíðahvörf skortir á K2 vítamín og tekur inn kalsíum til að koma í veg fyrir beinmissi er hún í tvöfaldri hættu á að fá hjartaáfall. Hægt er að stjórna blóðkalsíumlækkun ef það er nóg K2 vítamín í mataræðinu.
MK4 og MK7 eru tvær aðalgerðir K2 vítamíns
En vandinn er sá að það er of dýrt að vinna MK4 úr dýrafitu og þess vegna er efnið nú búið til úr tóbakslaufum. Þannig ef að þú kaupir fæðubótarefnið MK4 færðu ekki lengur náttúrulegu útgáfuna. Það þarf að neyta matarins sem var nefndur áðan, í honum er gott magn af MK4.
Ef tekin eru inn fæðubótarefni mælir Dr. Berg með MK7 sem er náttúruleg framleiðsla.
Hvaða hlutföll þurfa að vera á milli D3 vítamíns og K2 vítamíns?
Á móti 5.000 UI af D3 vítamíni þarf að taka 50 míkrógrömm af K2 vítamíni.
Á móti 10.000 IU af D3 vítamíni þarf að taka 100 míkrógrömm af K2 vítamíni.
Á móti 20.000 IU af D3 vítamíni þarf að taka 200 míkrógrömm af K2 vítamíni.
Ingibjörg Sigfúsdóttir stiklaði á stóru í endursögn myndbandsins ,,The Unique Benefits of Using Vitamin D and K2 Combined“ eftir dr.Eric Berg. Slóðin er: https://www.youtube.com/watch?v=uBqNYt6oGCc
Kynning á dr. Eric Berg og heilsutengdri fræðslu hans. https://heilsuhringurinn.is/2023/11/08/kynning-a-dr-eric-berg-d-c-og-heilsutengdri-fraedslu-hans/
Áður birt grein um K2 vítamín: Hvað er K2-vítamín og hvaða gagn gegnir það? https://heilsuhringurinn.is/2024/02/12/hvad-er-k2-vitamin-og-hvada-gagn-gegnir-thad/
Árið 2008 birti Heilsuhringurinn umfjöllun um rannsóknir Weston Price í greininni: Vandamálið eftir Harald Magnússon osteópata. Greinina má finna hér: https://heilsuhringurinn.is/2008/09/26/vandamalie/

