Line var búin að þjást í mörg ár vegna hælspora (Plantar fasciitis) á báðum fótum. Hún fór í göngugreiningu og þar voru henni sköffuð innlegg og ráðlagt að kaupa rándýra skó sem áttu að bæta meinið. En það breytti engu sársaukinn var jafn mikill og þegar það virkaði ekki, reyndi hún að finna aðrar leiðir til að losna við verkina og fór meðal annars í sjúkraþjálfun, nálastungur og nudd. En ekkert af því læknaði verkina.
Nú fær Line orðið:
Í öðru tilfelli reyndust ,,Fit therapy patch” plástrarnir líka vel, þá fékk maðurinn minn kúlu aftan á fótinn neðarlega á kálfann, Hann leitaði til læknis sem sagði að þetta væri sinabólga (Achilles tendinitis) og ekki hægt að laga það, en vanalega gengi þetta yfir á u.þ.b. einu ári. Nokkrum árum seinna var hann enn jafn slæmur í fætinum og fór hann þá að prófa plástrana og fann strax mikinn mun og bólgan í sininni er nú mikið til horfin.
Ein vinkona okkar hefur einnig notað þessa verkjaplástra gegn höfuðverkjum sem hún fær oft. Þá setur hún þá á hálsinn og axlirnar og það dregur úr höfuðverknum og hjálpar henni mikið við að losna við hann.
Plástrarnir eru með ýmsu lagi og mismunandi stórir og fer eftir því hvar á líkamann á að setja þá til dæmis á bak, axlir, ökkla, hné, olnboga, háls og á kvið gegn tíðaverkjum.
Ingibjörg Sigfúsdóttir skráði í 29. september 2024.

