Heilsuhringurinn var stofnaður í ágúst 1978. Í gegnum tíðina hefur margt úrvalsfólk lagt fram krafta sína og gert Heilsuhringinn að virtum vettvangi fyrir kjörlækningar. Sjálfboðaliðar halda uppi þeim hugsjónum sem starf Heilsuhringsins byggir á.
Brautryðjandi og fyrsti formaður Heilsuhringsins var Marteinn M. Skaftfells. Með honum valdist hópur áhugafólks um hollefni og heilbrigða lífshætti. Leitast hefur verið við að miðla fræðslu um heildrænar leiðir til að viðhalda heilbrigði og benda á áhugaverðar nýjungar á sviði lækninga.