Site icon Heilsuhringurinn

Ótrúlega árangursrík afturábak ganga

Hörður Torfason, tónlistarmaður, leikari, söngvaskáld og samfélagsrýnir, vakti nýlega athygli þegar hann deildi persónulegri sögu á Facebook um glímu sína við þráláta bakverki – og aðferð sem hann segir hafa breytt lífi sínu: að ganga afturábak.

Hörður er fæddur árið 1945 og hefur lifað einstaklega virku og litríku lífi. Í dag, rúmlega áttræður, er hann enn fullur af orku og segir reglulega hreyfingu, forvitni og ýmsar daglegar venjur skipta miklu máli fyrir heilsuna. Þegar hann birti færsluna um afturábakgönguna vakti hún áhuga Lukku og Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, sem fengu hann í kjölfarið til sín í Heilsuhlaðvarpið til að ræða þessa óvenjulegu reynslu – en samtalið fór fljótt langt út fyrir bakverki og göngulag og varð að líflegu spjalli um heilsu, öldrun, lífið og tilveruna.

Saga Harðar af bakverkjunum nær aftur til ársins 1994 þegar hann lenti í tveimur bílslysum á sömu vikunni. Hann lýsir því að hafa fengið slæman hálshnykk og bakskaða og um tíma hafi ástandið verið svo erfitt að hann hafi átt í miklum vandræðum með að rétta úr sér á morgnana. Verkirnir fylgdu honum árum saman.

Síðan kom óvænt ráð frá manni sem hann hitti í sánu: Prófaðu að ganga afturábak.

Hörður byrjaði rólega, aðeins eina mínútu í senn, og jók síðan tímann smám saman upp í um fimm mínútur. Hann segir að breytingin hafi ekki komið á einni nóttu, en með reglulegri iðkun hafi verkirnir smám saman horfið.

„Síðan hef ég verið algjörlega verkjalaus og finn ekki fyrir bakverkjum,“ skrifaði Hörður í færslunni og bætti við að ef hann sleppi afturábakgöngunni í tvær vikur eða lengur fari verkirnir gjarnan að minna á sig aftur.

Í viðtalinu í Heilsuhlaðvarpinu segir hann nánar frá þessari vegferð, hvernig hann framkvæmir æfinguna og hvað annað hann gerir dagsdaglega til að viðhalda heilsu og hreyfigetu. Hann ræðir einnig um mikilvægi þess að halda líkamanum virkum með aldrinum – en ekki síður að halda áfram að vera forvitinn, skapandi og þátttakandi í lífinu.

Hörður sjálfur lýsir þessu með sinni alkunnu kímni.

„Ég er sem sagt AFTURGANGA.“

Samtalið við Hörð varð þó fljótt að miklu meira en umræðu um eina æfingu. Það varð samtal um hvað það þýðir að eldast, hvernig við getum sjálf tekið virkan þátt í eigin heilsu og hversu miklu máli daglegar venjur geta skipt – jafnvel þegar þær virðast í fyrstu svolítið óvenjulegar.

Hér má hlusta á viðtalið við Hörð í Heilsuhlaðvarpinu.

Dr. Eric Berg hefur einmitt skrifað um kosti þess að ganga aftur á bak. Í myndbandinu ,,The most dangerous walk” eftir dr. Eric Berg segir að það að ganga afturábak leiði ekki eingöngu til bættrar starfsemi lungna og hjarta og komi fólki í gott form, heldur endurforriti það heilann. Það sé mun öflugra en klukkutími í ræktinni og komi í veg fyrir að þurfa að þjálfa heilann við að leysa þrautir.

Skoðum ýmislegt mjög áhugavert sem gerist þegar byrjað er að ganga afturábak:

Númer eitt: Álag á hnjáliðina minnkar um allt að 40% samstundis. Þegar þú gengur aftur á bak virkjarðu ákveðið taugaviðbragð sem veldur því að aftanverðir lærvöðvarnir lengjast. Það getur bætt liðleika og dregið úr spennu í mjóbakinu. Ein rannsókn sýndi að liðleiki í aftanverðum lærvöðvum jókst um 13% einungis með því að ganga afturábak.

Það áhugaverðasta er að ákveðin svæði heilans örvast og virkjast.

 

Eftir að að búið er að venjast hreyfingunni og fólk er orðið öruggt og stöðugt  er komið að því að æfa að ganga afturábak upp ójafna brekku. Svo ætti smám saman að auka álagið með því að ganga afturábak upp grasivagsna brekku.

En fyrir suma er það þó alls ekki nauðsynlegt að komast á það stig að ganga afturábak upp brekku. Það getur verið fullkomlega nóg að ganga aftur á bak á jafnsléttu þar sem fólk er öruggt. Að ganga afturábak snýr einfaldlega við þeirri hreyfingu sem flestir hafa stundað alla ævi. Það getur minnkað álag á hnén og virkjað aftanverða lærvöðva og rassvöðva.

Dr. Berg varar fólk við og biður það að fara varlega því að í versta falli geti ganga afturábak endað á bráðamóttöku.

Hér er þýtt, stytt og endursagt myndbandið ,,The most dangerous walk” eftir dr. Eric Berg. slóðin er: https://www.youtube.com/shorts/FZ3PbwgMh7o   

 Kynning á dr. Eric Berg höfundi myndbandsins  :

https://heilsuhringurinn.is/2023/11/08/kynning-a-dr-eric-berg-d-c-og-heilsutengdri-fraedslu-hans/

 

 

 

Ingibjörg Sigfúsdóttir í september árið 2026.

 

Exit mobile version