Site icon Heilsuhringurinn

Líf og heilsa. Ekki flækja málin. Góð ráð nr: 3

Ylfa Carlsson næringarfræðingur gefur fleiri góð ráð.
Til að halda fullri heilsu þarf líkaminn um 90 næringarefni á hverjum degi. Takið þess vegna eftirfarandi:
Animal Pack fjölvítamín. Þau fást á netinu og þessi hafa reynst mér best s.l. 20 ár. Þau eru gerð fyrir afburða íþróttamenn og þess vegna vel sterk. Margt fólk óttast sterk vítamín en það er af því að það veit ekki hvílíkt gagn þau gera.

Vitaskuld er til fólk, sem ekki þolir eitt og annað sökum ástands síns, en það fólk þarf að vera undir eftirliti fagfólks og kemur ekki við sögu hér og nú.

Pantið þess vegna Animalið og byrjið á að taka einn posa af efnunum á morgnana, með einhverjum mat. Síðan má taka annan á eftirmiðdögum.
Það hafa verið miklar vangaveltur yfir því hvenær dags er best að taka næringarefni. Mín reynsla er sú, að það sé mikilvægast, bara að koma þeim í sig. Engin manneskja er eins og þess vegna er best að hlusta á líkamann. Hann segir ykkur af hverju ykkur verður vel og af hverju ykkur verður miður.

Langi ykkur í eitthvað sérstakt, er það vegna þess að í því er eitthvert efni sem ykkur vantar. Ef þetta efni er sykur, þá vantar ykkur orku og það er betra að fá hana úr alhliða næringarefnum, en úr unnum sykri.

Sykurþörf minnkar og hverfur, þegar líkaminn er mettaður af góðri næringu.

Gangi ykkur vel. Ylfa Carlsson.

Exit mobile version