Sumir leiða ekki hugann að starfsemi ristils þó að það sé mikilvægt fyrir heilbrigði líkamans. Ristill sem starfar ekki eðlilega getur haldið í sér mörgum kílóum af úrgangi lengur en æskilegt er. Eitt af algengustu merkjum um þetta er hægðatregða. Nútíma mataræði skortir oft nauðsynleg næringarefni, það getur hægt á ferli meltingar úr 24 klukkustundum, sem telst eðlilegt í 70 klukkutíma. Svo treg melting getur jafnvel valdið 15 kílóa uppsöfnun á úrgangi í ristlinum. Slíkt veldur því að slímlag ristilsins þykknar og rotnun hefst. Háræðar í ristli byrja að taka upp skaðleg efni á meðan þau seytla í gegnum þarmaveggina. Allir vefir og líffæri líkamans þurfa þá að takast á við eiturefnin sem ristillinn vinnur úr þessum uppsafnaða úrgangi.
Árið 1940 þróaði maður að nafni Stanley Burroughs tíu til sextán daga hreinsunarkúr fyrir ristil, sem hefur reynst vel.
Uppskrift:
- 2 msk lífrænn sítrónusafi
- 2 msk hreint lífrænt sýróp
- einn tíundi partur úr teskeið af cayenne pipar
- 1 ¼ bolli vatn
Aðferð:
Blandað mjög vel saman. Drukkið 5-8 sinnum á dag í a.m.k. 10 daga en ekki lengur en í 16 daga.
Sé ristill veikur varnar það frásogi vítamína, steinefna og bætiefna. Það veldur veikum líkama.
Þetta eru endursagðir punktar úr grein sem má finna á frummáli á slóðinni:http://buynongmoseeds.com/you-have-about-5-to-30-pounds-of-poison-in-your-colon-here-is-your-solution/
Ingibjörg Sigfúsdóttir 13.1. 2015
Flokkar:Ýmislegt