Komdu þér framúr með þessari morgunrútínu

Góð ráð frá Júlíu heilsumarkþjálfa.

Ég verð bara að segja þér nokkuð. Þetta hjálpaði mér frá því að vera í 30 mín að vakna almennilega á morgnana stöðugt að hugsa um að fara aftur undir sæng, í að upplifa mig fríska og orkumikla strax fyrstu 5 mínútur dagsins. Í þokkabót styður þetta við hreinsun, eykur brennslu og bætir orkustig yfir daginn (og er ekki síður ágæt skemmtun). Ef þú átt erfitt með að koma þér framúr á morgnanna gætir þú breytt því hvernig þú byrjar daginn. Góð byrjun á deginum leggur grunninn að heilsusamlegum og orkumiklum degi.

Það sem gerði gæfumuninn hjá mér var þegar ég keypti mér innandyra trampólín. Ég byrja yfirleitt daginn á 1-2 stórum glösum af vatni og suma daga fæ ég mér heit vatn með sítrónu í framhaldi. Næst trítla ég inná skrifstofu til mín í dún inniskónum mínum, set tónlist í gang og hoppa á innandyra trampólíninu mínu í 3-15 mín, lengdin fer eftir hvað ég er í stuði fyrir.

 Að skoppa á litlu trampólíni eða endurkastast snýr að því að hoppa léttilega þannig að fæturnir skilji ekki við trampólínið eða að hoppa í loftið.

Trampólín hopp öðlaðist fyrst vinsældir um 1980 þegar NASA gerði rannsókn hvernig hægt væri að hjálpa geimförum að endurheimta bein- og vöðvamassa fyrr eftir geimferðir, með endurkasti upp í loftið eins og gerist með því að hoppa á trampólíni. Eftir það sáu þeir mikinn árangur.

 Upp og niður hreyfinginn við trampólín hopp hefur jákvæð áhrif á sogæðakerfi líkamans þar sem það liggur lóðrétt, en sogæðakerfi okkar styður m.a við ónæmiskerfið og hreinsun úrgangsefna úr líkamanum.

Kostir að hoppa á innandyra trampólíni…

  • • Eykur brennslu og þyngdartap
  • • Styrkir neðri líkama (Að æfa neðri líkama eykur brennslu og gerir mörg dagleg verkefni auðveldari)
  • • Er góð fyrir beinin  (þar sem æfingar með eigin líkamsþyngd getur styrkt beinin)
  • • Eykur þol
  • • Eykur hreinsun líkamans
  • • Bætir meltingu
  • • Dregur úr appelsínuhúð (vegna betri hreinsunar líkamans í gegnum sogæðakerfið)

Hvernig á að byrja?

Flestir mæla með að hoppa í 15 mín á hverjum degi, það er allt í lagi að brjóta það niður í 3-5 mín í hvert skipti yfir daginn.

Þó að trampólínhopp sé frekar auðveld hreyfing, er best að byrja á að hoppa á tánum rólega og síðan færa þig yfir í að hoppa hærra og nota allan fótinn.

Ég geymi trampólínið mitt inná skrifstofunni hérna heima, til að virða það ef aðrir heimilismeðlimir vilja sofa lengur. Einnig er gott að hressa sig við yfir daginn með smá hoppi.

Það eru mörg mismunandi trampólín í boði. Persónulega notast ég við trampólín með teygjum frekar en með gormum þar sem teygjur fara betur með líkamann og liðamót heldur en hefðbundin gorma trampólín (eða yfir 40% betur), en slík gormatrampólín eru sjálfsagt allt í lagi líka.

Hér eru nokkur trampólín sem fást hér á Íslandi:

  • • Teygju trampólín sem kallast Jumpsport (það sem ég nota og líka vel við), frá Hreysti í skeifunni Reykjavík
  • • Gorma trampólín frá Altís, hafnarfirði.
  • • Gorma trampólín, frá Hreysti í Skeifunni

Fimm mínútur á dag er betra en 20 mín einu sinni í viku…

Stöðugleiki er lykilatriði að bæði árangri og að skapa vana sem þú heldur við. Það skiptir ekki hversu annríkt ég á eða upptekin ég held að ég sé, ég geri alltaf morgunrútínu mína þó svo það sé ekki nema 2-5 mín þann dag.

Vakti greinin áhuga þinn?

Ef svo er máttu deila með vinum þínum á facebook og sérstaklega ef þú átt vinkonu/vin sem á erfitt með að fara framúr á morgnana.

Mig langar að heyra frá þér!  Hvað gerir þú til að hressa þig við á morgnanna? Hefur þú reynslu af innan dyra trampólíni og hvernig líkar þér? Kíkið sóð frumgreinarinnað og takið þátt í spjallinu: http://lifdutilfulls.is/komdu-ther-framur-med-thessari-morgunrutinu/

Heilsa og hamingja

Höfundur: Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi 2015



Flokkar:Fjölskylda og börn, Greinar

Flokkar/Tögg, , ,